4. desember 2024
4. desember 2024
Greiðsla húsnæðisbóta í nóvember 2024
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS greiddi rúmar 1.070 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda þann 29. nóvember 2024. Um 1.050 milljónir króna voru vegna leigu í nóvember, en þar af voru um 116 milljónir greiddar til stuðnings fyrir Grindvíkinga. Um þrjár tegundir af stuðningi er að ræða, sértækan stuðning fyrir Grindvíkinga, húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir Kópavog og Skagafjörð.
Sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ
HMS ber ábyrgð á greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Alls voru um 119 milljónir króna greiddar til um 550 heimila. Um tæpar 117 milljónir voru greiddar vegna leigu í nóvember.
Almennar húsnæðisbætur
Húsnæðisbótum er ætlað að styðja tekju- og eignalægri einstaklinga vegna leigu á íbúðarhúsnæði og eru þær greiddar mánaðarlega. Heildargreiðsla húsnæðisbóta nam um 927 milljónum króna til um 16.775 umsækjenda en þar af voru um 910 milljónir króna vegna leigu í nóvembermánuði.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluti af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls um 24 milljónir króna til um 970 umsækjenda í Kópavogi og 76 umsækjenda í Skagafirði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS