3. september 2024

Greiðsla húsnæðisbóta í ágúst 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS greiddi rúmar 1.022 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda þann 30. ágúst 2024. Um 1.008 milljónir króna voru vegna leigu í ágúst, en þar af voru um 140 milljónir greiddar til stuðnings fyrir Grindvíkinga. Um þrjár tegundir af stuðningi er að ræða, sértækan stuðning fyrir Grindvíkinga, húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir Kópavog og Skagafjörð.

Sér­tæk­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur vegna nátt­úru­ham­fara í Grinda­vík­ur­bæ

HMS ber ábyrgð á greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Alls voru rúmar 140 milljónir króna greiddar til um 640 heimila.

Al­menn­ar hús­næð­is­bæt­ur

Húsnæðisbótum er ætlað að styðja tekju- og eignalægri einstaklinga vegna leigu á íbúðarhúsnæði og eru þær greiddar mánaðarlega. Heildargreiðsla húsnæðisbóta nam um 857 milljónum króna til um 16.000 umsækjenda en þar af voru um 845 milljónir króna vegna leigu í ágústmánuði.

Sér­stak­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur fyr­ir Kópa­vog og Skaga­fjörð

HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluti af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls um 23 milljónir króna til 924 umsækjenda í Kópavogi og 77 umsækjenda í Skagafirði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS