7. maí 2025
2. febrúar 2021
Fyrstu kaupendur aldrei fleiri
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Eins og fjallað var um í nýútgefinni skýrslu HMS, Stöðu og þróun húsnæðismála 2021, hefur hlutfall fyrstu kaupenda aldrei verið jafn hátt og nú. Samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands má sjá að 30,3% af öllum kaupsamningum á árinu 2020 voru kaupsamningar um fyrstu eign. Þess má geta að ef tveir aðilar kaupa saman er nóg að annar aðilinn hafi aldrei átt íbúð áður til þess að viðskiptin teljist til fyrstu kaupa.
Eins og fjallað var um í nýútgefinni skýrslu HMS, Stöðu og þróun húsnæðismála 2021, hefur hlutfall fyrstu kaupenda aldrei verið jafn hátt og nú. Samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands má sjá að 30,3% af öllum kaupsamningum á árinu 2020 voru kaupsamningar um fyrstu eign. Þess má geta að ef tveir aðilar kaupa saman er nóg að annar aðilinn hafi aldrei átt íbúð áður til þess að viðskiptin teljist til fyrstu kaupa.
Frá árinu 2009 hefur hlutfall fyrstu kaupenda farið stigvaxtandi með hverju árinu þrátt fyrir að fasteignaverð hækkað mikið að raunvirði yfir tímabilið. Undanfarið hafa lágir vextir vegið upp á móti verðhækkunum þannig að greiðslubyrði þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð hefur lækkað töluvert á undanförnum árum eins og fjallað var um í septemberskýrslu hagdeildar HMS. Á móti kemur þarf meira eigið fé til þess að eiga efni á útborgun eftir því sem fasteignaverð hækkar en það virðist ekki koma að sök um þessar mundir. Aðgerðir stjórnvalda hafa auðveldað ungu fólki og tekjulágum að eignast íbúðir sem hefur án efa ýtt undir hækkun hlutfalls fyrstu kaupenda. Þar má til dæmis nefna skattfrjálsa ráðstöfun á séreignarsparnaði sem auðveldar fólki að byggja upp eigið fé til útborgunar. Auk þess telur hagdeildin líklegt að í einhverjum tilfellum nýti foreldrar sér hagstæð kjör og aukið veðrými eftir því sem fasteignir hækka í verði og taki jafnvel lán og styðji börn sín við kaup á fyrstu eign. Aðgengi að fjármagni hefur að sama skapi verið mjög gott, ásamt lækkun vaxta, sem styður við þessa fjölgun.
Fyrir utan að hlutfall fyrstu kaupenda hafi aldrei verið jafn hátt svo langt sem gögn ná til þá hefur fjöldi kaupsamninga verið með mesta móti frá því fyrir hrun og því hefur fjöldi fyrstu kaupenda aukist enn meira. Árið 2020 voru 3.777 kaupsamningar sem teljast til fyrstu kaupa samanborið við 3.089 árið áður sem er 22% aukning á milli ára.
Hlutfall fyrstu kaupenda hefur fylgst nokkurn veginn að á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni en á síðasta ársfjórðungi var hlutfallið aðeins hærra á höfuðborgarsvæðinu eða 31,1% m.v. 28,7% annars staðar. Þróun hlutfalls fyrstu kaupenda eftir landshlutum má sjá á myndinni hér að neðan. Hlutfallið árið 2020 var hæst á Vestfjörðum og Vesturlandi en minnst á Suðurlandi og Norðurlandi eystra en þróunin hefur samt verið nokkuð áþekk í öllum landshlutum. Hafa ber í huga að hátt hlutfall er ekki endilega betra. Þótt það sé jákvætt að ungt fólk hafi tök á að kaupa sér íbúð þá getur það einnig verið til marks um heilbrigðan og skilvirkan íbúðamarkað ef að annað fólk skiptir oft um íbúð eftir því sem þarfir þess breytast.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS