21. apríl 2026
21. apríl 2026
Fyrsta konan hlýtur titilinn varaslökkviliðsstjóri
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Aðalfundur Félags slökkviliðsstjóri á Íslandi fór fram í Stykkishólmi dagana 17. – 18. apríl. Á fundinn mættu stjórnendur slökkviliða víðsvegar af landinu, alls um 65 þátttakendur ásamt fulltrúum HMS.
Fundurinn markaði tímamót í sögu félagsins, þar sem í fyrsta sinn mætti kona á aðalfundinn sem ber titilinn varaslökkviliðsstjóri. Hingað til hefur engin kona á Íslandi hvorki gegnt starfi slökkviliðsstjóra né varaslökkviliðsstjóra. Það er Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnarsviðs og varaslökkviliðsstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, sem hlýtur þennan sögulega titil.
Frá hægri: Aldís Rún Lárusdóttir varaslökkviliðsstjóri, Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar og formaður Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi og Einar Strand slökkviliðsstjóri Stykkishólms.
Aðalfundur Félags slökkviliðsstjóra haldinn í Stykkishólmi
Á fundinum voru rædd málefni slökkviliða, faglegt samstarf og framtíðaráskoranir í brunavörnum auk hefðbundin aðalfundarstörf.
Fulltrúar HMS voru gestir á fundinum og fluttu þar erindi um ýmis mál sem snúa að brunavörnum og starfsemi slökkviliða. Þar á meðal var fjallað um stefnumótandi málefni slökkviliða, Brunamálaskólann og eldvarnareftirlit slökkviliða. Samtal og umræður milli HMS og fulltrúa slökkviliðanna voru góð og gagnleg og endurspegluðu mikilvægi öflugs samstarfs á vettvangi brunavarna.
HMS gegnir samræmingarhlutverki á sviði brunavarna og slökkviliða og leggur ríka áherslu á náið samstarf við slökkviliðs landsins.
Hér má sjá mynd af hópnum á björtum sólardegi í Stykkishólmi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS






