4. desember 2024
29. nóvember 2024
Fyrirtækjum fjölgar í byggingariðnaði á milli ára
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Fleiri fyrirtæki starfa í byggingariðnaði á þriðja ársfjórðungi þessa árs en á sama tímabili í fyrra, samkvæmt tölum sem HMS hefur fengið frá Hagstofu um nýskráningar og gjaldþrot í greininni. Hins vegar fækkar nýskráningum umfram gjaldþrot á milli ára.
Fyrirtækjum fjölgar hægar í byggingariðnaði þrátt fyrir færri gjaldþrot
Á þriðja ársfjórðungi ársins urðu 17 fyrirtæki í byggingarstarfsemi gjaldþrota og 141 fyrirtæki voru nýskráð. Nýskráningar umfram gjaldþrot voru því 124 á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við 130 á sama tíma í fyrra.
Á fyrstu þremur fjórðungum ársins urðu 162 fyrirtæki í byggingarstarfsemi gjaldþrota, samanborið við 207 fyrirtæki í fyrra. Gjaldþrotin eru því færri en voru í fyrra en árið 2023 voru gjaldþrot og nýskráningar sögulega mörg í greininni. Nýskráningar umfram gjaldþrot á fyrstu þremur ársfjórðungum voru því 260 samanborið við 276 á sama tíma í fyrra.
Myndirnar hér að ofan sýna nýskráningar og gjaldþrot byggingarfyrirtækja á þriðju ársfjórðungum og fyrstu þremur ársfjórðungum á tímabilinu 2008 til 2024. Frá árinu 2013 hafa nýskráningar verið fleiri en gjaldþrot sem bendir til þess að fyrirtækjum hafi fjölgað í greininni ár frá ári.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS