8. maí 2025
Fundur um Evrópustyrki í mannvirkjaiðnaði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Á fimmtudaginn sl., 24. nóvember, var haldinn vel sóttur fundur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) um stærri evrópsk styrktækifæri á sviði mannvirkjamála í samstarfi við Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís).
Á fimmtudaginn sl. var haldinn vel sóttur fundur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) um stærri evrópsk styrktækifæri á sviði mannvirkjamála í samstarfi við Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís).
Á fundinum kynntu Gyða Einarsdóttir og Kolbrún Bjargmundsdóttir evrópska styrkjaumhverfið. Þær kynntu Horizon og Life áætlanirnar sem og sóknarstyrki sem veittir eru til umsóknarskrifa. Kristján hjá Gerosion sem hefur mikla reynslu af umsóknarskrifum miðlaði af reynslubrunni sínum.
Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir verkefnastjóri Asks – mannvirkjarannsóknarsjóðs kynnti aðkomu hennar og Björns Karlssonar prófessors og sérfræðings hjá innviðaráðuneytinu að bakhópavinnu Rannís þannig að nú geta aðilar sem vinna að rannsóknum í mannvirkjaiðnaði leitað til þeirra til að finna stærri styrktækifæri.
Að lokum flutti fundarstjóri lokaorð þar sem hann miðlaði af reynslu sinni sem umsóknarskrifari.
Dagskrá:
Kl. 10:00
Miðlun til styrkhafa Asks og aðila í mannvirkjaiðnaði um önnur styrktækifæri
Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Asks – mannvirkjarannsóknarsjóðs hjá HMS
Kl. 10:10
Árangurssaga við umsóknaþáttöku og afleidd áhrif
Kristján Friðrik Alexandersson hjá Gerosion
Kl. 10:30
Styrktækifæri og umfang umsókna, sóknarstyrkir, LIFE og Horizon
Gyða Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Spurningar og umræður
Fundarstjórn
Björn Karlsson prófessor, sérfræðingur hjá Innviðaráðuneytinu er fundarstjóri
Upptaka af lokaorðum fundarstjóra:
Upptaka af öllum fundinum:
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS