5. júní 2026
5. júní 2026
Fróðlegur Umhverfismatsdagur að baki
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Umhverfismatsdagurinn 2026 fór fram þann 4. júní
- Fjallað var um einföldun leyfisveitinga, fordæmisgefandi úrskurði, stjórn vatnamála og stefnu um líffræðilega fjölbreytni
- Í pallborði var farið yfir áskoranir og tækifæri í umhverfismati t.d. hvað varðar einföldun leyfisveitinga og í kjölfar nýlegra úrskurða
Umhverfismatsdagurinn 2026 var haldinn í gær, þann 4. júní 2026. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, flutti ávarp í upphafi fundar, fjölbreytt erindi fylgdu í kjölfarið og pallborðsumræður settu lokapunkt. Á dagskrá var einföldun regluverks og leyfisveitingaferla, úrskurðir sem fallið hafa nýlega og þýðing þeirra fyrir umhverfismat auk yfirferðar um stjórn vatnamála og mati á áhrifum á vatnshlot og stefnu um líffræðilega fjölbreytni.
Í pallborðsumræðum voru viðfangsefni dagsins rædd, áskoranir og tækifæri við einföldun regluverks umhverfismats og áhrif nýlegra úrskurða á störf þátttakenda við gerð umhverfismats.
Hlýða má á erindi dagsins í spilaranum hér fyrir neðan, tímasetning hvers erindis er tiltekin fremst.
Erindi og tímasetningar erinda í upptöku
17:45 Ávarp ráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
30:38 Ávarp Ólafs Árnasonar, framkvæmdarstjóra skipulags- og umhverfismatssviðs HMS.
44:00 Aukin skilvirkni við leyfisveitingar framkvæmda. Magnús Dige Baldursson, lögfræðingur, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
1:28 Vendingar í nýlegum úrskurðum og þýðing þeirra. Ottó Björgvin Óskarsson, lögfræðingur á skipulags- og umhverfismatssviði HMS.
1.46.14 Stjórn vatnamála - Vatnaáætlun, vatnshlot og umhverfismarkmið. Marianne Jensdóttir Fjeld, verkefnastjóri, Umhverfis- og orkustofnun.
2.06.45 Mat á áhrifum framkvæmda og starfsemi á vatnshlot, Eydís Salome Eiríksdóttir, jarðefnafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun.
2.29.19 Líffræðileg fjölbreytni í umhverfismati: Stefna stjórnvalda og nýjar áherslur í framkvæmd, Salome Hallfreðsdóttir sérfræðingur, skrifstofa náttúru og minjaverndar, Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneyti.
2.43.36 Umræður í pallborði. Í pallborði voru Erla Björg Aðalsteinsdóttir hjá VSÓ Ráðgjöf, Ólafur Árnason hjá HMS, Ragnhildur Gunnarsdóttir hjá Eflu, Rut Kristinsdóttir hjá Landsnet.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




