29. ágúst 2022

Framboð íbúða til sölu eykst hratt

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Framboð íbúða til sölu hefur aukist hratt undanfarið. Á höfuðborgarsvæðinu eru nú 1.013 íbúðir til sölu en í lok júlí voru þær aðeins 700 og því hefur framboðið aukist um 45% á einum mánuði. Lægst fór framboðið í 437 íbúðir í byrjun febrúar sl. Þetta er í fyrsta sinn síðan vorið 2021 þar sem fleiri en 1.000 íbúðir eru til sölu á höfuðborgarsvæðinu. Þess má hins vegar geta að í maí 2020 voru ríflega 2.200 íbúðir auglýstar til sölu. 

Í nágrannasveitarfélögum eru 409 íbúðir til sölu en þær voru 323 fyrir mánuði og aðeins rétt rúmlega 200 í byrjun maí. Annars staðar á landsbyggðinni eru 371 íbúð til sölu en þar hefur íbúðum fjölgað hægar. 

Framboð sérbýla á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið hlutfallslega álíka mikið og framboð íbúða í fjölbýli bæði undanfarinn mánuð og frá því að botninum var náð. Hins vegar náði farmboð sérbýla ekki botninum fyrr en í apríl á meðan það gerðist í byrjun febrúar fyrir íbúðir í fjölbýli. 

Á höfuðborgarsvæðinu hefur framboð sérbýla vaxið hlutfallslega álíka mikið og framboð íbúða í fjölbýli, bæði undanfarinn mánuð og frá því botninum var náð. Hins vegar náði framboð sérbýla ekki botninum fyrr en í apríl á meðan framboð íbúða í fjölbýli náði botninum í byrjun febrúar. 

Framboðsaukningin virðist einkum vera til komin vegna eldri íbúða en framboð á nýjum íbúðum hefur vaxið hægar. Nú eru 151 ný íbúð til sölu en fjöldi þeirra fór minnst í 57 íbúðir. Aukið framboð er því ekki hægt að skýra með auknu framboði nýrra íbúða heldur er líklegasta skýringin sú að hægt hafi á sölu vegna minnkandi eftirspurnar. Um helmingur íbúða til sölu á höfuðborgarsvæðinuer á auglýstur á 75 m.kr. eða meira.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS