22. apríl 2026
22. apríl 2026
Fjölmennt var á Húsnæðisdeginum 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Húsnæðisdagurinn var haldinn í húsakynnum HMS í dag
- Fjallað var um íbúðaþörf, skipulagsmál og leigumarkaðinn
- Niðurstöður nýrrar könnunar HMS um skipulags- og búsetuóskir voru kynntar á fundinum
Húsnæðisdagurinn 2026 var haldinn í húsakynnum HMS í dag. Á dagskrá voru húsnæðismál í víðu samhengi, en fjallað var um íbúðaþörf, skipulagsmál og leigumarkaðinn. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra setti fundinn en fjölbreyttur hópur fólks tók þátt í dagskránni með framsögum og þátttöku í pallborðsumræðum. Upptöku af fundinum má finna í spilaranum hér fyrir neðan.
Á fundinum voru meðal annars kynntar niðurstöður úr nýrri könnun HMS um skipulags- og búsetuóskir landsmanna og þær settar í samhengi við þær íbúðir sem eru í byggingu í dag og stefnu höfuðborgarsvæðisins í skipulagsmálum. Meðal annars kom fram að mest sé verið að byggja af fjölbýlishúsum með mörgum íbúðum á sama tíma og einungis lítill hluti landsmanna sér fyrir sér að búa í slíku húsnæði á næstu árum.
Á fundinum var einnig fjallað um íbúðaþörf, hvernig hún er metin og hvaða þátta skiptir máli að horfa til við slíkt mat. Fram kom að mat á íbúðaþörf sé ónákvæmt en nytsamlegt tæki sem geti gefið gagnlegar upplýsingar fyrir byggingargeirann og hið opinbera.
Að lokum var fjallað um stöðuna á leigumarkaði sem stærri en áður var talið. Fram kom að leigjendur búi margir hverjir við krefjandi aðstæður, upplifi minna húsnæðisöryggi en eigendur og eigi erfiðara með að ná endum saman. Í pallborðsumræðum komu fram sjónarmið ólíkra aðila um hvernig sé ákjósanlegast að standa að stuðningi við leigjendur.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





