15. janúar 2024

Fjöldi leigusamninga um íbúðarhúsnæði í desember 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði í desember 2023 eftir landshlutum.

  • Heildarfjöldi samninga á landinu voru 162 í síðasta mánuði og fækkaði þeim um 42,3 % frá því í nóvember 2023 og fækkaði um 79,5% frá desember 2022.
  • Heildarfjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu voru 99 og fækkaði þeim um 107 samninga frá nóvember 2023 og fækkaði um 82% frá desember 2022.

Skráningar í leiguskrá

Hafa verður í huga að um áramót 2022/23 tóku gildi breytingar á lögum um húsaleigu sem skylda leigusala í atvinnurekstri til að skrá leigusamninga í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS. Skráning í grunninn er jafnframt skilyrði þess að leigjandi njóti réttar til húsnæðisbóta. Þinglýsing leigusamnings er því ekki lengur skilyrði húsnæðisbóta og því má búast við að þinglýstum leigusamningum fari fækkandi.
Alls voru 906 húsaleigusamningar skráðir í leiguskrána sem tóku gildi í desember miðað við 954 samninga sem tóku gildi í nóvember sl. Alls voru 11.881 samningar skráðir í leiguskránna á nýliðnu ári.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS