13. maí 2025
13. janúar 2022
Er þetta í lagi hjá þér? Virkar eldvarnarhurðin í þinni byggingu?
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Nýverið varð mannskæður eldsvoði í fjölbýlishúsi í New York, sautján létust þar af átta börn. Talið er að eldsupptök hafi orðið út frá rafmagnshitara í íbúð á fyrstu hæð í nítján hæða fjölbýlishúsi í Bronx. Samkvæmt fréttum varð takmarkað tjón vegna elds í hluta hússins en hins vegar hafi svartur reykjarmökkur dreifst frá íbúðinni og breytt stigagöngum húsnæðisins í dauðagildru. Ástæðu fyrir óheftri útbreiðslu reyksins má rekja til bilunar eða gálausri meðferð á brunahólfandi eldvarnarhurð sem varð til þess að hún lokaðist ekki.

Tilgangur brunavarna og brunahólfunar í byggingum er m.a. að hindra útbreiðslu elds og reyks innan húsnæðis, þannig að sjálfsbjörgun og skilvirkt slökkvistarf verði mögulegt. Eldvarnarhurðir eru til þess fallnar að hamla útbreiðslu elds og reyks milli rýma, þær þurfa því að vera vottaðar með tilliti til staðla og brunamótstöðu. Eldvarnarhurðir eru oftar en ekki sjálflokandi, þ.e. þær hafa hurðapumpu sem lokar þeim sjálfvirkt þegar brunkerfi virkjast. Markmið hurðanna er að hefta útbreiðslu elds og tryggja að flóttaleiðir séu að mestu reykfríar. Það kemur fyrir að hurðirnar séu festar opnar, pumpurnar teknar úr sambandi eða eitthvað sé sett fyrir þannig að þær lokist ekki. Slíkur gjörningur veldur því að brunahólfun verður óskilvirk sem leiðir til að eldur og reykur kemst óhindrað á milli rýma. Af þessum ástæðum er mikilvægt að hafa hlutverk eldvarnarhurða í huga áður en átt er við lokun þeirra og tryggja að hurðin verði sett aftur í rétt horf komi til tímabundina aðstæðna eða viðhalds. Annar mikilvægur þáttur í brunavörnum fjölbýla og fyrirtækja er að til staðar sé sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi og þar sem við á sjálfvirkur slökkvibúnaður. Slík kerfi sem og aðrar brunavarnir þarf að yfirfara reglulega og ganga úr skugga um virkni þeirra.
Berum ábyrgð og höfum brunavarnirnar í lagi.https://www.visir.is/g/20222206755d/eld-varnar-hurdir-lokudust-ekki-thegar-elds-vodi-vard-sau-tjan-ad-bana
Eigið eldvarnareftirlit https://hms.is/brunavarnir/forvarnir-og-fraedsla/eigid-eldvarnareftirlit/
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS