30. desember 2020

Eldklár áramótaráð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Nú er örlagaríka árið 2020 að líða undir lok og áramótin rétt handan við hornið mörgum okkar til mikillar gleði. Áramótunum fylgja ýmsar brunagildrur og brunahættur sem birtast okkur á ýmsan máta s.s. í formi flugelda, slakra brunavarna heima við og illa eða lítið vökvuðu jólatré.

Nú er örlagaríka árið 2020 að líða undir lok og áramótin rétt handan við hornið mörgum okkar til mikillar gleði. Áramótunum fylgja ýmsar brunagildrur og brunahættur sem birtast okkur á ýmsan máta s.s. í formi flugelda, slakra brunavarna heima við og illa eða lítið vökvuðu jólatré.

 

Hér eru sex ELDKLÁR áramótaráð sem geta hjálpað þér að hefja nýtt ár stórslysalaust:

  • Hinar hefðbundnu brunavarnir eiga og verða að vera í lagi. Gangið úr skugga um að reykskynjarar séu virkir, að eldvarnarteppi hafi verið hengt upp í eldhúsinu og að slökkvitæki séu í lagi og rétt staðsett.
  • Mikilvægt er að heimilisfólk hafi gert flóttaáætlun, þekki hana og að út af heimilinu séu a.m.k. tvær greiðar flóttaleiðir.
  • Ekki gleyma að vökva jólatréð! Það kann að hljómar undarlega að það að vökva jólatréð skipti máli – staðreyndin er sú að þurrt og óvökvað jólatré getur fuðrar upp á sekúndum og er því mikil brunagildra.
  • Hafið ALLTAF skotvarnargleraugu, hvort sem þið eruð sjálf að meðhöndla flugelda og skjóta þeim upp eða eruð úti við sem áhorfendur.
  • Þegar flugeldum er skotið upp er mikilvægt að allsgáðir fullorðnir einstaklingar hafi aðkomu og að gætt sé þess að flugeldum sé komið fyrir á traustum grunni til að tryggja rétta virkni flugelda.
  • Gætið þess að standa ekki eða bogra yfir flugeldum.

 

Við hvetjum þig og þína til að hafa brunavarnir heimilisins á hreinu og að ganga hóflega hægt um gleðinnar dyr. Áramótin eru yndisleg og það er frábært að skjóta upp flugeldum, kveikja á kertum og hafa jólaseríur logandi út myrkasta skammdegið. Höfum varann á svo að áramótin verði sem skemmtilegust í ár, við eigum það svo sannarlega skilið.

Ertu í vandræðum með brunavarnirnar? Það er ekki skrítið, þetta getur verið flókið. Við getum svo sannarlega aðstoðað þig við að koma brunavörnunum í lag, gerum það saman hér.

 

Gleðilegt nýtt ár, sjáumst ELDKLÁR á því nýja.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS