1. desember 2023

Dagur reykskynjarans

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Reykskynjari bjargar mannslífum!

Dagur reykskynjarans er í dag, 1. desember. Þetta litla en magnaða öryggistæki er það mikilvægasta af öllum tækjum heimilisins. Slökkvilið landsins og Vertu eldklár, forvarnarverkefni HMS, standa saman að eldvarnarátaki sem hefst í dag þar sem allir landsmenn eru hvatir til að huga að brunavörnum heimilisins.

Reykskynjarinn vakir yfir þér og þínu fólki. Eldurinn læðist um og lætur ekki vita af sér, en það er skerandi hljóð reykskynjarans sem vekur þig ef eldur kemur upp á heimili þínu.

Mikilvægir punktar varðandi reykskynjara:

  • Reykskynjarar eiga að vera í öllum rýmum heimilisins
  • Mikilvægt er að staðsetja þá sem næst miðju lofts
  • Prófið virkni reykskynjarans að lágmarki einu sinni á ári
  • Mikilvægt er að allir þekki flóttaleiðir á sínu heimili og að þær séu greiðfærar 
  • Hafið slökkvitæki tiltækt á flóttaleiðinni

Á aðventunni er notalegt að eiga góða stund með fjölskyldu og vinum, þá kveikjum við oft á kertum og skreytum heimili okkar. Förum gætilega með eld og rafmagn, höfum óbrennanlegt undirlag undir kertum, staðsetjum þau ekki nálægt gardínum og munum að vökva jólatrén, séu þau lifandi grenitré, því þau eru eldfimari ef þau þorna upp. Raftæki og aðrir hitagjafar, svo sem kertaljós, arineldur og jólaseríur, eru ómissandi partur af lífi okkar flestra en geta þó snögglega snúist upp í andhverfu sína ef umgengnin er ekki örugg. Hlöðum rafmagnshjól og rafmagnstæki af ábyrgð, ekki hlaða á meðan allir eru sofandi eða þegar enginn heima.

Vertu ELDKLÁR og gakktu úr skugga um að öll raftæki og aðrir hitagjafar séu öruggir á þínu heimili.

Samkvæmt skoðanakönnun Maskínu, sem gerð var í janúar 2023, þá eru 95,7% heimila með einn eða fleiri reykskynjara, en það verða öll heimili að hafa reykskynjara.

Gleði­lega að­ventu!

Nánari fróðleikur um brunavarnir heimilanna má finna á vefsíðunni https://vertueldklar.is/ 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS