23. nóvember 2021

Áfram dregur úr umsvifum á fasteignamarkaði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Þjóðskrá hefur birt tölur um fjölda útgefinna kaupsamninga í október. Samkvæmt því voru kaupsamningar 1.118 talsins samanborið við 1.281 í október. Aðeins eru birtar tölur um samninga sem búið er að þinglýsa og því munu tölurnar fyrir október hækka lítilega eftir því sem samningar berast úr þinglýsingu. Umsvif hafa dregist nokkuð saman frá því á vormánuðum en met var slegið um fjölda kaupsamninga í mars á þessu ári eins og sést á myndinni hér að neðan. Eins og fram hefur komið í umfjöllun HMS að undanförnu má að öllum líkindum rekja minni umsvif til þess hve fáar íbúðir eru til sölu. Eftirspurn eftir íbúðum virðist enn nokkuð mikil en frekari greininga á eftirspurninni er að vænta í næstu mánaðarskýrslu HMS í desember.

Þótt nokkuð hafi dregið úr umsvifum þá eru þau þó í sögulegu samhengi mjög mikil. Þegar allir kaupsamningar fyrir október mánuð hafa skilað sér í þinglýsingu er líklegt að aðeins október 2020 og 2007 hafi verið umsvifameiri. Á myndinni hér að neðan sést hver þróun hvers árs er eftir mánuðum og þar trónir október 2021 á topp þremur yfir umsvifamestu októbermánuðina.