3. febrúar 2025
4. febrúar 2025
75 nýjar lóðir skráðar í janúar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Alls voru 75 nýjar lóðir staðfestar í Fasteignaskrá HMS í janúar um allt land
- Flestar lóðir voru atvinnuhúsalóðir eða 36 talsins
- Nýskráðum lóðum fækkar töluvert á milli janúarmánaða 2024 og 2025
Í janúar voru staðfestar í fasteignaskrá 75 nýjar lóðir. Er það nokkuð færri en í janúar í fyrra þegar 157 lóðir voru staðfestar. Flestar lóðir voru atvinnuhúsalóðir eða alls 36 talsins, en slíkum lóðum fjölgar á milli mánaða eða um 13 talsins. Auk þess voru skráðar 6 sumarhúsalóðir og 22 íbúðahúsalóðir.
Fjöldi nýskráðra lóða um allt land eftir mánuðum og flokkum
Myndin hér að ofan sýnir mánaðarlegar tölur um fjölda nýskráðra lóða eftir öllum flokkum. Lóðir skráðar sem annað land eða einfaldlega lóð voru 10 talsins í janúar, en líklegast er að þessar lóðir breyti um gerð þegar fram líða stundir og verði þá skráðar sem atvinnu-, sumarhúsa- eða íbúðarlóðir.
Flestar nýjar lóðir voru staðfestar í Mosfellsbæ eða 16 talsins, þar sem allar voru skráðar sem atvinnuhúsalóðir. Kópavogsbær var með næstflestar skráðar lóðir, eða 7 talsins og þar af 6 íbúðarhúsalóðir.
Flóahreppur og Sveitarfélagið Vogar staðfestu 5 íbúðarhúsalóðir í fasteignaskrá í janúar. Reykjavíkurborg, Akureyrarbær, Sveitarfélagið Hornafjörður og Skeiða- og Gnúpverjahreppur stofnuðu öll tvær atvinnulóðir.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS