9. september 2026

104 heimsóknir til söluaðila raffanga frá maí til ágúst 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi, en BSI á Íslandi ehf. framkvæmir skoðanir á rafföngum í umboði HMS
  • Frá maí til ágúst voru 104 heimsóknir farnar til söluaðila og 3.160 rafföng skimuð, meðal annars með yfirferð merkinga og CE-merkinga
  • Flest skimuð rafföng voru lýsingarbúnaður, raflagnabúnaður og heimilistæki, alls 2.326 vörur af þeim 3.160 sem voru skimaðar

HMS annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi. Stofnunin fylgist með rafföngum á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum. Faggilt skoðunarstofa, BSI á Íslandi ehf, annast í umboði HMS, framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók stofnunarinnar.

Á tímabilinu maí til ágúst á þessu ári var farið í 104 heimsóknir til söluaðila raffanga, í þessum heimsóknum voru 3.160 rafföng „skimuð.“ Með skimun er átt við lauslega skoðun á sem flestum rafföngum á viðkomandi sölustað með það að markmiði að sigta út rafföng sem ekki uppfylla kröfur, m.a. með því að yfirfara merkingar, þ.m.t. CE-merkingar.

Af skimuðum rafföngum flokkuðust flest sem lýsingarbúnaður (806), raflagnabúnaður (794) og heimilistæki (726).

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS