21. ágúst 2026

Skipulagsmál júní- og júlímánaðar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS staðfesti 23 breytingar á aðalskipulagi í júní- og júlímánuði
  • Lokið var við athugun á 43 nýjum deiliskipulagsáætlunum og 22 breytingum á deiliskipulagi
  • Á bak við þessar tölur eru fjölbreytt áform, svo sem  vatnsaflsvirkjun, útivistarsvæði, færanlegar kennslustofur, ný vatnslögn og fjölgun íbúða á miðsvæði

Aðalskipulag á borði HMS

Meðal mála sem nú eru á borði HMS til staðfestingar má nefna breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar – Galtarlæk. Fyrirhuguð er stækkun á athafnasvæði og skilgreining á nýju hafnarsvæði innan jarðarinnar. Áætlað er að á svæðinu verði starfsemi sem hýsi vörugeymslur, geymslusvæði, léttan iðnað og ýmiss konar þjónustusvæði, t.d. vegna hafnsækinnar starfsemi. Gert er ráð fyrir höfn og viðlegukanti sem muni þjónusta flutningaskip og skemmtiferðaskip.

Þá er kominn til staðfestingar rammahluti aðalskipulags Grundarfjarðar vegna blágrænna ofanvatnslausna í þéttbýlinu. Grundarfjörður fékk nýlega LIFE-ICEWATER styrk frá Evrópusambandinu til uppbyggingar blágrænna lausna til ársins 2030 á grunni stefnu aðalskipulagsins.

Einnig má nefna Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037, sem komið er til athugunar fyrir auglýsingu, og Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037 og Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 til staðfestingar.

Deiliskipulag á borði HMS

Af deiliskipulagi má nefna að hafin er vinna við gerð deiliskipulags fyrir Þríhnúka og nágrenni sem mun taka til Þríhnúkagígs ásamt gönguleiðum og öðrum mannvirkjum vegna aðstöðu fyrir ferðaþjónustu og útivist í nágrenni Þríhnúka.

Deiliskipulag Þorlákshafnarvegar barst stofnuninni til athugunar að lokinni auglýsingu í júnílok. Deiliskipulagið tekur til Þorlákshafnarvegar í heild sinni og snýr að áformum um fækkun vegtenginga og lagningu nýrra héraðsvega samsíða honum auk göngu-, reið- og hjólastíga. Deiliskipulagið bíður birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.

Fleiri mál má finna inni á Skipulagsgátt og vakin er athygli á að þar er m.a. hægt að leita að málum eftir tímabilum, svæðum, ferli og stöðu máls. Jafnframt er hægt að vakta valin svæði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS