Fræðsla og forvarnir
Fræðsla og forvarnir
Fræðsla og forvarnir
Fræðsla og forvarnir
Rafbílar
Rafbílar
Rafbíll eða rafmagnsbíll er ökutæki sem er knúið áfram af rafmagnsmótor og er með rafhlöðu til orkugeymslu. Á Íslandi er allt rafmagn framleitt innanlands. Rafbílar eru því þjóðhagslega hagkvæmir samanborið við bíla sem brenna jarðefnaeldsneyti.
Hleðsla rafbíla hefur í för með sér töluverða straumnotkun sem af getur stafað hætta sé ekki rétt að málum staðið. Til að tryggja öryggi hafa verið settar sérstakar reglur um raflagnir á stöðum þar sem hleðsla rafbíla fer fram, sem og um búnað sem nota skal í þessu skyni. Þessar reglur ásamt árvekni og réttri umgengni notenda við búnaðinn tryggir öryggi við hleðslu rafbíla eins og frekast er unnt.