Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur
Borgartún 21
12:00
Upplýsingar
Borgartún 21
12:00
22
sep.
HMS boðar til opins fundar um stöðu íbúðauppbyggingar fyrir landið allt þriðjudaginn 22. september í Borgartúni 21 klukkan 12:00. Á fundinum verður farið yfir helstu niðurstöður úr septembertalningu á íbúðum í byggingu, en þær verða gefnar út sama dag, auk þess sem HMS mun greina frá stöðu og horfum á byggingarmarkaði. Á fundinum verður einnig sagt frá íbúðauppbyggingu í Reykjavík.
Dagskrá
- Niðurstöður úr septembertalningu HMS á íbúðum í byggingu
Hugrún Ýr Sigurðarsdóttir, teymisstjóri fasteignamats og skráningar hjá HMS - Staða og horfur á byggingarmarkaði
Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur HMS - Íbúðauppbygging í Reykjavík
Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs
Fundarstjóri verður Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS.
Húsið opnar kl. 11:45, en búist er við að viðburðinum ljúki kl. 12:45. Léttar veitingar verða í boði fyrir fundargesti.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í streymi.
