Lífsferilsgreiningar í mannvirkjagerð
Borgartún 21, Reykjavík
12:00 - 13:00
Upplýsingar
Borgartún 21, Reykjavík
12:00 - 13:00
26
mars
Þriðjudaginn 26. mars 2024 kl. 12-13 verður samræmd aðferðafræði við gerð lífsferilsgreininga fyrir íslenskar byggingar formlega gefin út, með opnun LCA-gáttar og upplýsingasíðu um lífsferilsgreiningar á hms.is. Fundurinn markar jafnframt upphaf 18 mánaða aðlögunartíma fyrir innleiðingu lífsferilsgreininga.
Meðal þeirra sem koma munu fram eru:
- Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra
- Þóra Margrét Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri mannvirkja og sjálfbærni hjá HMS
- Elín Þórólfsdóttir sérfræðingur í mannvirkjum og sjálfbærni hjá HMS
- Friðrik Gunnarsson sérfræðingur í umhverfismálum hjá FSRE
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins