HMS

Locations

Borgartúni 21, 105 Reykjavík.

Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur.

Hafnarstræti 107, 600 Akureyri.

Kt: 581219-1480

Opening Hours

Mon to Thur 8:30AM - 3:30PM
Fridays from 9AM - 2PM

Phone: 440 6400

Email: hms@hms.is

Fasteignamat 2024 kynnt 31. maí kl. 10:30

location-svg

Í húsnæði HMS Borgartúni 21, Reykjavík.

10.30

Upplýsingar

location-svg

Í húsnæði HMS Borgartúni 21, Reykjavík.

10.30

31

maí

HMS boðar til opins kynningarfundar í HMS, Borgartúni 21, miðvikudaginn 31. maí kl. 10:30 þar sem nýtt fasteignamat ársins 2024 verður kynnt. Farið verður yfir verðþróun, framboð fasteigna og húsnæðisþörf. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun tók við verkefnum fasteignaskrár í júlí 2022. HMS kynnir nú í fyrsta skipti endurmat fasteigna. Fasteignamat fellur vel að öðrum verkefnum HMS svo sem framkvæmd húsnæðisáætlana, upplýsinga um mannvirkjauppbyggingu og greininga á húsnæðismarkaði. 

Fasteignamat 2024 kynnt - Verðþróun, framboð fasteigna og húsnæðisþörf.

Dagskrá 

10:30-10:35 Fundarsetning. 

10:35-10:50 Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS á Akureyri - Nýtt fasteignamat fyrir 2024. 

10:50-11:05 Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga - Húsnæðisþörf og staða sveitarfélaga. 

11:05-11:20 Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans - Staða lántakenda. 

11:20-11:30 Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri lánasviðs HMS - Húsnæðis-uppbygging og áætlanir um frekari uppbyggingu. 

 

Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir.