Byggingarvörur - tækifæri til einföldunar

location-svg

HMS, Borgartúni 21

13:00

Upplýsingar

location-svg

HMS, Borgartúni 21

13:00

17

des.

HMS, Samtök iðnaðarins og Danish Technological Institute boða til fræðslufundar um byggingarvörur þann 17. desember næstkomandi klukkan 13:00 í húsakynnum HMS í Borgartúni 21. Að fundi loknum verður boðið upp á léttar veitingar. Fundinum verður einnig streymt á vefsíðu HMS. 

Sérfræðingar HMS fjalla m.a. um verkefni sem hafa verið í brennidepli í ár, annars vegar eftirlit með gluggum og hins vegar fræðsluáætlun um meðferð byggingarvara.

Einnig verður farið yfir ábyrgðarhlutverk fagaðila, það er hönnuða, verktaka og framleiðenda og söluaðila byggingarvara.

Sérfræðingar frá Teknologisk Institut í Danmörku munu segja frá stofnuninni og prófunum á byggingarvörum sem þeir framkvæma.

Um er að ræða sannkallaðan jólafund þar sem byggingarvörur verða í forgrunni.

Upp­tök­ur af fund­in­um