Brunamálaskólinn
Brunamálaskólinn
Námskeið Brunamálaskólans
Námskeið Brunamálaskólans
Áætlun um námskeið Brunamálaskólans á hverju ári er birt um leið og hún liggur fyrir og er einnig send slökkviliðsstjórum.
Skráning á námskeið
Grunnmenntun fyrir slökkviliðsmenn skal taka mið af lögbundnum verkefnum slökkviliða og útfært nánar í námskrá skólans. Heimilt er að útfæra grunnnámið að mismunandi rekstrarformum slökkviliða, þannig að það þjóni slökkviliðsmönnum í bæði aðal- og aukastarfi. Nánar um grunnmenntun fyrir slökkviliðsmenn í 10. grein reglugerðar um Brunamálaskólann
Skráning á námskeið skal berast til HMS á netfangið brunamalaskolinn@hms.is að minnsta kosti 14 dögum áður en það hefst.
Náist ekki lágmarksfjöldi á námskeiðið fellur það niður. Skráning er jafnframt staðfesting slökkviliðsstjóra á að viðkomandi slökkviliðsmenn hafi lokið fornámi og námi sem samsvarar undanfarandi námskeiðum, hafi tilskilin réttindi og hæfni þar sem það á við.
Dagskrá skólaársins 2025 (birt með fyrirvara um breytingar)
Endurskipulagning skólans er enn í fullum gangi og tekur skipulag skólans og námskeiðshald mið af því.
Námskeið vorönn 2025
Stað- og dagsetningar námskeiða verða ákveðin í samráði við slökkviliðin á þeim landshlutum sem námskeiðin verða haldin.
- Þrjár námslotur vegna grunnnáms slökkviliðsmanna - verklegar staðlotur með bóklegum undanfara á kennsluvef. - auglýst síðar
- Framhaldsnám fyrir slökkviliðsmenn - tilraunahópur SHS - auglýst síðar.
- Stjórnendanám - Áætlað á Vesturlandi, Norðurlandi og Austurlandi - auglýst síðar.
Ef önnur námskeið verða sett á dagskrá, að því leiðarljósi að hraða framgangi endurskipulagningar skólans verður skráning og skipulag auglýst tímanlega.
Fyrir nýliða í slökkviliðum
Nám við Brunamálaskólann er fyrir einstaklinga sem eru starfandi í slökkviliðum. Fyrsti hluti náms slökkviliðsmanna kallast fornám og er í umsjón og ábyrgð viðkomandi slökkviliðs en Brunamálaskólinn lætur slökkviliði í hendur verklega námslýsingu, ásamt því að veita nemendum aðgengi að bóklegu námsefni í gegnum kennsluvef. Starfsnám tekur við af fornámi, þar sem nemendur taka þátt í æfingum og þjálfun slökkviliðsins.