Meðhöndlun rafhlaupahjóla og annarra tækja með liþíum rafhlöður
Meðhöndlun rafhlaupahjóla og annarra tækja með liþíum rafhlöður
Notkun tækja sem innihalda liþíum rafhlöður verður sífellt algengari, en þau má finna á flestum heimilum landsins.
Algeng tæki sem innihalda liþíum rafhlöður
- Símar
- Spjaldtölvur
- Rafhlaupahjól
- Rafrettur
- Rafmagnsverkfæri
- Snjallúr
Myndband um bruna í liþíum rafhlöðum
Hægt er að draga úr líkum á slysum tengdum vörum með líþíum rafhlöður með því að fylgja eftirfarandi skrefum:
- Ekki hlaða tækin þegar allir eru sofandi eða enginn er til staðar
- Nota skal hleðslubúnað sem fylgir tækjunum eða er sérstaklega ætlaður þeim
- Rafhlaðan og hleðslutækið eiga að vera á flötu óbrennanlegu undirlagi
- Brennanleg efni eiga ekki að vera nálægt tækjunum
- Ekki breiða yfir hleðslubúnaðinn eða rafhlöðuna
- Reykskynjari á að vera til staðar í því rými sem tækið er hlaðið
- Ekki hlaða rafhlöðuna í frosti eða miklum hita
- Ekki hlaða skemmda rafhlöðu
Um liþíum jóna rafhlöður (Li-ion).
Kostir:
- Auðvelt að hlaða við lágan straum
- Eru léttar og geyma mikla orku
- Halda orku mjög vel
- Þola margar hleðslur og afhleðslur
- Þarf ekki að afhlaða alveg fyrir hleðslu
Ókostir:
- Eru viðkvæmar fyrir höggum
- Eru viðkvæmar fyrir frosti og háum hita
- Þurfa vandaða rafrás til að stýra straumi og spennu
- Geta gefið frá sér brennanlegar lofttegundir
- Geta brunnið og jafnvel sprungið, t.d. vegna skammhlaups í rafrás
- Getur verið erfitt að slökkva eld í þeim
Skemmdir á liþíumrafhlöðum geta valdið eldsvoða jafnvel þó þær sé ekki í hleðslu. Skiptið án tafar út skemmdum rafhlöðum.