2024
Concrete of the Future/Steypa til framtíðar

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2024

Concrete of the Future/Steypa til framtíðar

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Concrete of the Future/Steypa til framtíðar

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Concrete of the Future/Steypa til framtíðar

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Dr. Gísli Guðmundsson

Concrete of the Future/Steypa til framtíðar

Concrete of the Future/Steypa til framtíðar

Lokaskýrsla fyrir Ask - mannvirkjarannsóknasjóð

Bætt vistvæni steinsteypu með minna sementi

Fyrra verkefni styrkt af Aski - mannvirkjarannsóknasjóði (2022)

Concrete of the Fut­ure/Steypa til fram­tíð­ar

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna eiginleika jarðhitakísils og vegryks sem íauka í steinsteypu, það er að meta póssólana virkni þessara efna. Tvær tegundir jarðhitakísils voru rannsakaðar, annars vegar hefðbundinn jarðhitakísill og hins vegar magnesíumríkur jarðhitakísill. Vegrykið var upprunnið úr Hvalfjarðargöngum, þar sem það hafði verið hreinsað af akveginum.

Rannsókninni var skipt í tvo áfanga, áfanga 1 og 2. Báðir áfangar voru framkvæmdir með svipuðum hætti; fyrst var unnið með múrblöndur og að því loknu voru steypublöndur prófaðar. Í fyrri áfanga var unnið með um 270 kg/m³ af sementi og bætt var við um 30 kg/m³ af kísilryki, jarðhitakísli eða vegryki. Í seinni áfanga voru notaðar tvær viðmiðunarblöndur með 200 og 250 kg/m³ af sementi án íauka. Einnig voru útbúnar blöndur með 200 kg/m³ af sementi og 50 eða 100 kg/m³ af íaukum, þ.e. jarðhitakísli (JHK), magnesíumríkum jarðhitakísli (MgSi) eða vegryki.

Prófanir á múrblöndum fólust í mælingum á hitamyndun í báðum áföngum. Í fyrri áfanga voru jafnframt rannsakaðir flotfræðilegir eiginleikar blanda, en í seinni áfanga voru framkvæmdar rannsóknir með rafeindasmásjá og hitavigtargreiningu (TGA).

Steinsteypublöndur voru prófaðar með tilliti til eiginleika á borð við þrýstistyrk, vatnsdrægni, frostþol og klóríðleiðni. Rannsóknin var framhald af verkefni sem hlaut styrk frá Aski árið 2022, þar sem sambærileg rannsókn hafði verið framkvæmd með fleiri íaukum.