Umhverfismatsdagurinn 2026

location-svg

Borgartún 21

9:00-12:00

Upplýsingar

location-svg

Borgartún 21

9:00-12:00

4

júní

Umhverfismatsdagurinn 2026 fer fram í húsakynnum HMS að Borgartúni 21 fimmtudaginn 4. júní n.k. Takið daginn frá!

Í ár verður sjónum beint að einföldun leyfisveitingaferla, fordæmisgefandi úrskurðir sem hafa áhrif á málaflokkinn verða skoðaðir, framfylgd vatnaáætlunar og áhrifamat á vatnshlot og stefnu um líffræðilega fjölbreytni og aðgerðaráætlun.  

Dagskrá: 

9.00 Opnun fundar, fundarstjóri 

9.05 Ávarp ráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 

9.15 Ávarp Ólafs Árnasonar, framkvæmdarstjóra skipulags- og umhverfismatssviðs HMS 

9.30 Aukin skilvirkni við leyfisveitingar framkvæmda. Magnús Dige Baldursson, lögfræðingur, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið 

9.50 Kaffihlé 

10.15 Vendingar í nýlegum úrskurðum og þýðing þeirra. Ottó Björgvin Óskarsson lögfræðingur á skipulags- og umhverfismatssviði HMS.

10.35 Stjórn vatnamála - Vatnaáætlun, vatnshlot og umhverfismarkmið. Marianne Jensdóttir Fjeld, verkefnastjóri , Umhverfis- og orkustofnun.  

10.55 Vinna við áhrifamat vatnshlota eftir leiðbeiningum, Eydís Salome Eiríksdóttir hjá Hafrannsóknarstofnun.

11.15 Líffræðileg fjölbreytni í umhverfismati: Stefna stjórnvalda og nýjar áherslur í framkvæmd, Salome Hallfreðsdóttir sérfræðingur, skrifstofa náttúru og minjaverndar, Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneyti.  

11.35 Umræður í pallborði 

Erla Björg Aðalsteinsdóttir hjá VSÓ Ráðgjöf, Ólafur Árnason hjá HMS, Ragnhildur Gunnarsdóttir hjá Eflu, Rut Kristinsdóttir hjá Landsnet. 

12.15 Ráðstefnulok  

Umhverfismatsdagurinn 2026