Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Vestfjörðum

location-svg

Edinborgarhúsinu, Aðalstræti 7 á Ísafirði

12:00

Upplýsingar

location-svg

Edinborgarhúsinu, Aðalstræti 7 á Ísafirði

12:00

10

nóv.

Mánudaginn 10. nóvember verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðahorfur íbúðarmarkaðar á Vestfjörðum. Fundurinn verður haldinn í Edinborgarhúsinu, Aðalstræti 7 á Ísafirði, kl. 12 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS, Tryggð byggð og Vestfjarðarstofa. 

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. 

Dagskrá 

  • Staðan í Ísafjarðarbæ 
    Axel R. Överby, sviðsstjóri umhverfis og eignasviðs Ísafjarðarbæjar 
  • Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur 
    Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS 
  • Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað 
    Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS 

 

Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. 

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.