Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Suðurlandi
Fröken Selfoss
11:45
Upplýsingar
Fröken Selfoss
11:45
13
okt.
Mánudaginn 13. október verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðahorfur íbúðarmarkaðar á Suðurlandi. Fundurinn verður haldinn á Fröken Selfoss, Brúartorgi á Selfossi, kl. 11:45 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS, Tryggð byggð og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins.
Dagskrá :
- Staðan í Árborg
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar - Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur
Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS - Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað
Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS
Fundarstjóri verður Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SASS.
Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.