Kynning á Vegvísi að markvissum húsnæðisstuðningi til leigjenda

location-svg

Borgartún 21

11:15

Upplýsingar

location-svg

Borgartún 21

11:15

15

sep.

HMS boðar til opins fundar þriðjudaginn 15. september kl. 11:15 í Borgartúni 21 þar sem kynntur verður nýr Vegvísir að markvissum húsnæðisstuðningi til leigjenda.

Vegvísir HMS byggir á greiningum á núverandi stuðningskerfum hins opinbera til leigjenda og leggur fram tillögur að einfaldari, skilvirkari og markvissari húsnæðisstuðningi.

Fundurinn er ætlaður öllum þeim sem koma að húsnæðismálum, hvort sem er hjá ríki, sveitarfélögum, hagsmunaaðilum og öðrum sem hafa áhuga á framtíð húsnæðisstuðnings á Íslandi.

Fundurinn verður einnig í streymi. Hlekkur verður birtur síðar hér.

Dagskrá

Fundarstjóri: Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS

  • Staðan í dag og lagaumgjörðin
    Aldís Hlín Skúladóttir, sérfræðingur á leigumarkaðssviði HMS
  • Greiningar og helstu niðurstöður
    Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur á húsnæðissviði HMS
  • Tillögur vegvísisins og næstu skref
    Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri leigumarkaðssviðs HMS
  • Sjónarhorn leigjenda
    Yngvi Ómar Sigrúnarson, Leigjendasamtökunum
  • Aðgerðir stjórnvalda í leigumálum
    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra