Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar á suðurlandi
Hótel Höfn
11:45-13:30
Upplýsingar
Hótel Höfn
11:45-13:30
20
nóv.
Mánudaginn 20. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar á Suðurlandi. Fundurinn verður haldinn á Hótel Höfn kl. 11:45 og er opinn öllum. Að fundinum standa ýmsir aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða SASS, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkir og Samtök iðnaðarins.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.
Dagskrá
Áskoranir og tækifæri á Suðurlandi
Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS
Staða íbúðauppbyggingar
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
Stafræn byggingarleyfi
Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
Lánastarfsemi Byggðastofnunar
Pétur Friðjónsson, sérfræðingur á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar
Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Lóa Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá HVIN
Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu
Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri verður Ásgerður Kristín Gylfadóttir, formaður SASS.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.