Atvinnuuppbygging og þróun íbúðamarkaðar á austurlandi
Hótel Berjaya Hérað á Egilsstöðum
11:30-13:00
Upplýsingar
Hótel Berjaya Hérað á Egilsstöðum
11:30-13:00
21
nóv.
Þriðjudaginn 21. nóvember verður haldinn opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum. Fundurinn verður haldinn á Hótel Berjaya Hérað á Egilsstöðum kl. 11:30 og er opinn öllum. Að fundinum standa ýmsir aðilar sem láta sig varða uppbyggingu í landsbyggðunum eða Vestfjarðarstofa, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkir og Samtök iðnaðarins.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.
Dagskrá
Áskoranir og tækifæri á Austurlandi
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, framkvæmdarstjóri Austurbrú
Staða íbúðauppbyggingar
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
Stafræn byggingarleyfi
Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
Lánastarfsemi Byggðastofnunar
Pétur Friðjónsson, sérfræðingur á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar
Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Lóa Auðunsdóttir, sérfræðingur hjá HVIN
Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu
Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
Húsið opnar kl. 11:15 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.