Evrópustyrkir í mannvirkjaiðnaði
Borgartún 21
10.00-11:15
Upplýsingar
Borgartún 21
10.00-11:15
24
nóv.
Askur – mannvirkjarannsóknasjóður og Rannís bjóða til fundar um stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði. Fundurinn er haldinn í húsakynnum HMS og verður hægt að fylgjast með fundinum á Teams. Smelltu hér til að tengjast fundinum
Staður : Hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) Borgartúni 21
Stund : Fimmtudagurinn 24 nóvember, kl. 10-11:15
Skrá mig á fundinn
Á fundinum mun Kolbrún hjá Rannís upplýsa um styrktækifæri sem eru í farveginum í mannvirkjaiðnaði. Hún kynnir Horizon og Life áætlanirnar sem og sóknarstyrki sem veittir eru til umsóknarskrifa. Kristján hjá Gerosion sem hefur mikla reynslu af umsóknarskrifum miðlar af reynslubrunni sínum.
Við hjá HMS og Aski þekkjum að það er gríðarleg hæfni, reynsla og þekking hjá styrkhöfum Asks og höfum væntingar um að auka hlutdeild styrkfjár til mannvirkjarannsókna hérlendis með samstarfi við Rannís og með reglulegri miðlun upplýsinga um tækifæri sem bjóðast.
Dagskrá
Kl. 10:00 - Miðlun til styrkhafa Asks og aðila í mannvirkjaiðnaði um önnur styrktækifæri
Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Asks – mannvirkjarannsóknarsjóðs hjá HMS
Kl. 10.10 - Árangurssaga um umsóknaþáttöku og afleidd áhrif
Kristján Friðrik Alexandersson hjá Gerosion
Kl. 10.30 - Styrktækifæri og umfang umsókna, sóknarstyrkir, LIFE og Horizon
Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís
Kl. 11:00 - Spurningar og umræður
Fundarstjórn
Björn Karlsson prófessor, sérfræðingur hjá Innviðaráðuneytinu er fundarstjóri