BREEAM

BREEAM er fyrsta vistvottunarkerfið sem er ætlað sérstaklega fyrir nýbyggingar. Kerfið er alþjóðlegt en var stofnað í Bretlandi árið 1990. Meðal þeirra sem stuðst hafa við kerfið er Framkvæmdasýsla ríkisins, sem fer með stjórn ákveðins hluta verklegra framkvæmda af hálfu ríkisins. Þannig hafa alls tólf byggingar á vegum stofnunarinnar ýmist verið BREEAM vottaðar eða eru í slíku ferli. Þeirra á meðal eru til dæmis fangelsið á Hólmsheiði, sjúkrahótelið við Hringbraut, Veröld - hús Vigdísar og Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. Samkvæmt upplýsingum fráFramkvæmdasýslu ríkisins er miðað við að allar opinberar nýbyggingarframkvæmdir sem kosta meira en 500 milljónir króna verði BREEAM vottaðar (ofanflóðaverkefni eru ekki talin með þar). Þá er leitast við að setja sérstök umhverfisviðmið fyrir þau verkefni sem ekki fá fulla vottun.

Reykjavíkurborger annað dæmi um aðila sem hefur notast við BREEAM, en vottunin hefur verið fengin í tengslum við nokkrar framkvæmdir á vegum borgarinnar, eins og viðbyggingu Sundhallarinnar í Reykjavík, auk þess sem Dalskóli er í vottunarferli.

BREEAM er þó ekki eingöngu notað fyrir nýbyggingar, heldur einnig við endurgerð bygginga, byggingar í notkun (BREEAMinuse) og skipulag svæða (BREEAMcommunities). Þannig varReginn fasteignafélagfyrsti íslenski aðilinn til að klára BREEAMinUsefyrir byggingar í rekstri, en Smáralindin hlaut slíka vottun í janúar 2020.  Hvað BREEAMCommunitiesvarðar þá erUrriðaholt í Garðabæfyrsta hverfið hér á landi sem byggist á skipulagi sem hlotið hefur slíkavottun. Þá er unnið að því að skipulag nýs atvinnukjarna í landi Blikastaða fái samskonar vottun, enReitir fasteignafélagog Mosfellsbær vinna að undirbúningi þess verkefnis þegar þetta er skrifað.

Í skýrslu Grænni byggðar,Umhverfisvæn bygging í íslensku samhengi,er fjallað nánar um helstu kröfur Svansins og BREEAM auk þess sem þær eru metnar út frá íslenskum aðstæðum.