Stofnframlög
Stofnframlög
Stofnframlög
Stofnframlög
Hvað eru stofnframlög?
Hvað eru stofnframlög?
Stofnframlög eru húsnæðisstuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem almennar íbúðir eru staðsettar.
Stofnframlög eru veitt til byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði með það að markmiði að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði fyrir tekjulága einstaklinga og fjölskyldur og kallast íbúðirnar almennar íbúðir.
Hvað eru stofnframlög ríkis og sveitarfélaga?
HMS fer með úthlutun stofnframlags ríkisins sem nemur 18% af stofnvirði almennra íbúða, það er kostnaði við byggingu íbúða eða kaup á þeim. Við það bætist stofnframlag þess sveitarfélags þar sem almennar íbúðir eru staðsettar, en það nemur 12% af stofnvirði íbúðanna. Einnig er heimilt að veita tvenns konar viðbótarframlög ríkisins.
- Annars vegar er heimilt að veita allt að 4% viðbótarframlag vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga og vegna íbúðarhúsnæðis sem ætlað er námsmönnum eða öryrkjum. Með íbúðarhúsnæði á vegum sveitarfélags er átt við íbúðarhúsnæði sem sveitarfélög úthluta á grundvelli laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
- Hins vegar er heimilt að veita sérstakt byggðaframlag frá ríkinu til viðbótar öðrum stofnframlögum vegna byggingar almennra íbúða á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging íbúða hefur verið í lágmarki vegna misvægis milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs íbúðarhúsnæðis.
HMS metur þörf fyrir og ákvarðar fjárhæðir viðbótarframlaga. Stofnframlög ríkis og sveitarfélaga nema því að lágmarki 30%, en geta orðið talsvert hærri ef þörf er á veitingu beggja tegunda viðbótarframlaga ríkisins.
Hverjir geta sótt um stofnframlög?
HMS og sveitarfélögum er heimilt að veita stofnframlög vegna byggingar eða kaupa á almennum íbúðum til:
- Húsnæðissjálfseignarstofnana.
- Sveitarfélaga og lögaðila sem eru alfarið í eigu sveitarfélaga.
- Lögaðila sem voru starfandi við gildistöku laga þessara og uppfylltu skilyrði til að fá lán frá HMS skv. 37 gr. laga um húsnæðismál eins og ákveðið var fyrir gildistöku laga þessara.
Heimilt er með samþykki ráðherra að veita stofnframlög til annarra lögaðila en þeirra sem að ofan greinir ef þeir eru ekki reknir í hagnaðarskyni og það samræmist tilgangi og markmiðum laga þessara. Slíkt samþykki ráðherra skal liggja fyrir þegar sótt er um stofnframlag.
Sækja má um fyrir hönd óstofnaðrar húsnæðissjálfseignarstofnunar, en staðfesting sjálfseignarstofnunarskrár þarf að berast áður en til útgreiðslu stofnframlags getur komið. Gerð er krafa um að sá sem sækir um fyrir hönd óstofnaðrar húsnæðissjálfseignarstofnunar verði einn af stofnendum hennar.
Viðmiðunarstærðir við úthlutun
Við úthlutun er horft til þess að íbúðir séu að jafnaði ekki stærri en eftirfarandi tafla segir til um:
Neðangreind viðmið taka gildi við fyrri úthlutun 2023.
Fjöldi herbergja | Hámarsstærð íbúða | Hámarksstærð íbúða fyrir fatlað fólk |
---|---|---|
Einstaklingsíbúð | 50m² | 60m² |
2 herbergja íbúð | 60m² | 75m² |
3 herbergja íbúð | 85m² | 100m² |
4 herbergja íbúð | 100m² | 115m² |
5 herbergja íbúð | 115m² | 135m² |
3.486 hagkvæmar leiguíbúðir frá árinu 2016
Almenna íbúðakerfið var sett á stofn árið 2016 og hefur ríkið nú þegar úthlutað um 24 milljörðum króna til byggingar og kaupa á 3.486 íbúðum víðsvegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingu nemur 125 milljörðum króna.
Endurgreiðsla stofnframlaga og Húsnæðismálasjóður
Veitingu stofnframlaga ríkis og sveitarfélaga er heimilt að binda skilyrðum um að þau skuli endurgreidd þegar lánsfjármögnun hefur verið greidd upp (allt að 50 ára lánstími). Endurgreiðslur taka mið af fasteignamati almennrar íbúðar og greiðslubyrði miðast að meginstefnu til við meðalgreiðslubyrði lána á lánstíma.
Stofnframlag skal endurgreiða í heild sinni ef notkun íbúðar er breytt þannig að hún uppfylli ekki lengur skilyrði til þess að teljast almenn íbúð eða ef eigandi verður uppvís að lögbroti í starfsemi sinni eða ef önnur skilyrði fyrir úthlutun eru ekki uppfyllt. Stofnframlag skal jafnframt endurgreitt í heild sinni ef HMS og sveitarfélag þar sem almenn íbúð er staðsett heimila sölu hennar, nema andvirðið sé notað til kaupa á annarri almennri íbúð. Endurgreiðslur stofnframlaga, sem og hluti leigugreiðslna af íbúðum þar sem lán og stofnframlög hafa verið greidd upp, renna í Húsnæðismálasjóð.
Með uppbyggingu Húsnæðismálasjóðs er stefnt að sjálfbærni almenna íbúðakerfisins, en sjóðurinn mun m.a. taka við úthlutun stofnframlaga eftir nánari reglum sem er að finna í lögum 52/2016.