Markaðseftirlit
Markaðseftirlit
Skráning í EPREL gagnagrunn
Skráning í EPREL gagnagrunn
Áður en orkumerktar vörur eru settar á markað þurfa framleiðendur og innflytjendur þeirra að skrá vörugögn í sameiginlega evrópska gagnagrunninn, EPREL.
Til að tryggja að upplýsingar um vörur í EPREL séu áreiðanlegar hefur Evrópusambandið sett fram kröfu um að birgjar verði staðfestir til að viðhalda rétti sínum til að skrá vörur.
Staðfesting birgja í EPREL
Til að tryggja áreiðanleika upplýsinga þurfa birgjar að vera staðfestir til að nota EPREL. Staðfesting fer fram með rafrænu innsigli (fyrir fyrirtæki) eða rafrænni undirskrift (fyrir einstaklinga).
Birgjar sem ekki hafa verið staðfestir fyrir 22. október 2024 munu ekki hafa aðgang að EPREL. Þeir munu því hvorki geta skráð nýjar vörur, breytt núverandi skráningum né framkvæmt aðrar aðgerðir tengdar skráðum vörum sínum. Án staðfestingar verður ekki hægt að skrá vörur í EPREL. Óstaðfest fyrirtæki og vörur þeirra verða fjarlægð úr kerfinu.
Hlutverk staðfestingar:
- Tryggir að upplýsingar séu réttar og frá áreiðanlegum aðilum
- Tryggir að eingöngu fyrirtæki með starfsemi í ESB/EES og Norður-Írlandi geti skráð vörur
- Verndar nafn og vörumerki fyrirtækisins gegn misnotkun
Rafrænt innsigli fyrir EPREL skráningu
Til að skrá vörur í EPREL þurfa fyrirtæki að hafa rafrænt innsigli frá viðurkenndum þjónustuaðila af ESB.
Einn af eftirfarandi aðilum innan fyrirtækis geta sótt um rafrænt innsigli:
- Skipaður starfsmaður
- Fulltrúi fyrirtækisins
- Löglegur fulltrúi
Rafrænt innsigli er aðeins notað einu sinni við sannprófun fyrirtækisins, ekki fyrir skráningu hverrar vöru. Einstaklingurinn sem rafrænt skilríki er skráð á ber ábyrgð á réttmætri notkun þess.
Fyrir nánari aðstoð eða upplýsingar má hafa samband við: ENER-EPREL-HELPDESK@ec.europa.eu
Ítarefni
Leiðbeiningar um sannprófun birgja
Leiðbeiningar um sannprófun birgja eru uppfærðar reglulega en stofna þarf EU login aðgang til að nálgast þær: