Markaðseftirlit

Markaðseftirlit

Markaðseftirlit

Markaðseftirlit

Mæli­tæki og lög­mælifræði

Mæli­tæki og lög­mælifræði

Á Íslandi og EES-svæðinu er reglubundið eftirlit með mælitækjum til að tryggja öryggi, áreiðanleika og neytendavernd í sölumælingum. Mælitæki stuðla einnig að almannaheill, lýðheilsu, umhverfisvernd og réttmætri gjaldheimtu.

Fram­leiðsla og kröf­ur mæli­tækja

Framleiðsla sem er markaðssett eða framleidd á Íslandi þarf að uppfylla evrópskar reglur sem innleiddar hafa verið hér á landi. Öll mælitæki verða að standast grunnkröfur og eftir atvikum sérstakar kröfur fyrir viðeigandi tæki.

Ákvæðin gilda um ný og notuð tæki, innlend og innflutt og einnig þegar þau eru seld í gegnum fjarsölu. HMS sér um lögmælifræðilegt eftirlit og viðheldur landsmæligrunnum.

Eft­ir­lit með mæli­tækj­um

Löggilding mælitækja er aðferð til að tryggja að þau uppfylli allar kröfur laga og reglugerða. Löggilding fer fram með athugun, merkingu og útgáfu vottorðs og lýkur oft með innsiglun. Eigandi mælitækis ber ábyrgð á að þau uppfylli reglur og óska löggildingar áður en gildistími rennur út. Einnig er heimilt að leita samþykkis fyrir gæðakerfi eða innra eftirliti í stað löggildingar, að því tilskildu að það standist sömu kröfur um nákvæmni.

Vigt­ar­menn

Löggiltir vigtarmenn gefa út vottorð um vigtun sem standast fyrir dómstólum á Íslandi.

Mæli­tæki í notk­un

Mælifræðilegt eftirlit með mælitækjum felur í sér reglur um notkun, löggildingar, gildistíma og prófanir. HMS getur veitt umboð til faggiltra aðila til að framkvæma löggildingar.

Þrír aðilar starfa á grundvelli slíks umboðs frá HMS:

  • Frumherji: Allar sjálfvirkar og ósjálfvirkar vogir, eldsneytisdælur og raforkumæla.
  • BSI á Íslandi: Sjálfvirkar vogir og ósjálfvirkar vogir upp að 3.000 kg vigtargetu.
  • Löggilding: Allar sjálfvirkar og ósjálfvirkar vogir.

Ef eftirlitsskyldur aðili fer ekki eftir reglum tilkynnir umboðsaðilinn til stofnunarinnar, sem getur tekið ákvörðun um stjórnvaldsúrræði, t.d. að stöðva notkun mælitækis.

Sam­ræm­is­yf­ir­lýs­ing­ar

Framleiðendur mælitækja þurfa að gefa út samræmisyfirlýsingu sem staðfestir að tækið uppfylli kröfur. Í sumum tilfellum þarf viðurkenndur aðili að koma að ferlinu.

For­p­akkn­ing­ar

Mælingar á fyrirfram pakkaðar vörur eru mikilvægar fyrir traust og réttlæti í viðskiptum. Þyngd eða rúmmál vörunnar, sem kallað er „raunverulegt innihald“, skal mælt með löggiltu mælitæki af pökkunaraðila eða innflytjanda. Ef aðferðum eru fylgt, má merkja umbúðir með litlu „e“.

 

Ít­ar­efni

Lög og reglugerðir um mælitæki og lögmælifræði