Lífsferilsgreining - LCA
Lífsferilsgreining - LCA
Skilagátt LCA
Skilagátt LCA
Niðurstöðum lífsferilsgreiningar er skilað í gegnum skilagátt LCA. Frekari upplýsingar má finna í leiðbeiningum um skil eða með því að senda póst á LCA@hms.is.
Skilagátt LCA
Hverju þarf að skila og hvenær?
- Frá og með 1. september 2025 taka gildi kröfur í byggingarreglugerð um gerð og skil lífsferilsgreininga fyrir byggingar í 2. og 3. umfangsflokki, með áherslu á að reikna kolefnisspor bæði á hönnunarstigi (fyrir umsókn byggingarleyfis) og á lokastigi (fyrir lokaúttekt).
- Niðurstöður beggja stiga eru skilaðar í rafræna LCA skilagátt HMS, brotnar niður eftir lífsferilsfösum (A1-A3, A4, A5, B4, B6, C1-C4, D). Losun er gefin upp í [kg CO2-íg./m²/ár] miðað við brúttó fermetra.
- Við notkun skráningartöflu má miða við dálk D8 brúttóflatarmál.
Hlaða skal niður kvittun sem staðfestingu á skilum lífsferilsgreininga. Frá 1. september 2025 verður hún nauðsynleg fyrir byggingarleyfi og lokaúttekt.
Ekki er krafist sérnáms fyrir lífsferilsgreiningar, en þekking á mannvirkjagerð er nauðsynleg. Mælt er með LCA hugbúnaði til að tryggja gæði gagna og rekjanleika, án kröfu um ákveðinn hugbúnað.
Losunargögn verða notuð í rannsóknir og þróun viðmiðunarmarka en ekki rekjanleg til einstakra aðila.