Lífsferilsgreining - LCA
Lífsferilsgreining - LCA
Leiðbeiningar
Leiðbeiningar
Leiðbeiningarnar um lífsferilsgreiningu (LCA) veita grunnþekkingu og styðja við framkvæmd hennar í byggingariðnaði. Þær hjálpa til við að draga úr losun í samræmi við loftslagsáætlun stjórnvalda og væntanlegar sjálfbærnikröfur. Þær byggja á norrænum fyrirmyndum.
Hvernig á að gera LCA?
Mælt er með LCA hugbúnaði til að tryggja gæði, rekjanleika og einfalda vinnu sérfræðinga og hönnuða. LCA nær yfir framleiðslu byggingarefna, orkunotkun og úrgangsmeðhöndlun. Nauðsynlegt er að safna nákvæmum gögnum um efni, byggingarferla, flutning, rekstur, viðhald og förgun eða endurvinnslu yfir allan líftíma byggingar.
Mikilvægt er að fylgja kerfismörkum lífsferilsgreiningar. Ef byggingarefni finnst ekki í gagnabanka má nota annan og gera grein fyrir því. Ef EPD blöð eru til, skal nota þau, annars má nota meðaltalsgögn þegar raungögn eru ekki fáanleg. Nánari upplýsingar um EPD blöð undir ítarefni.
Þegar sérstök LCA forrit eru notuð í greiningar, þá er sett inn upplýsingar um byggingahluta og orkunotkun byggingarinnar. Forritið sér um LCA útreikningana og safnar niðurstöðum í töflur og skýrslur. Reiknað er yfir allan líftíma byggingarinnar, sem nær yfir hráefnisöflun, framleiðslu byggingarefna, orku- og auðlindanotkun við rekstur og viðhald, auk förgunar og hugsanlega endurvinnslu byggingarhluta og byggingarefna.
Til að fá frekari kennslu í lífsferilsgreiningum eru námskeið í boði hjá menntastofnunum, og flest forrit veita sérstakar leiðbeiningar. Sjá nánar um námsefni undir ítarefni.
Fasar
Heildstæð LCA greining tekur alla lífsferilsfasa með, en vegna óvissu eða skorts á meðaltalstölum eru ákveðnir fasi útilokaðir í fyrstu innleiðingu. Í töflunni fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þá fasa sem krafist verður nema B1, B2, B3, B5 og B7.
Fyrir fasa án upplýsinga á hönnunarstigi má nota meðaltalstölur byggðar á fermetra gildum frá HMS.
Áætla þarf líftíma byggingarefna og útskipti þeirra. Til eru gagnagrunnar sem áætla líftíma, til dæmis frá Háskólanum í Álaborg eða á blaðsíðum 29-30 í skýrslu Level(s). Unnið er að því að útbúa almenn gögn fyrir íslenskar aðstæður.
Líftími greininga
Skilgreindur líftími greininga skal vera 50 ár, eins og á Norðurlöndunum. Þetta þýðir ekki að mannvirki verði rifið eða hætti starfsemi eftir 50 ár, heldur auðveldar það staðlaðan samanburð og endurspeglar dæmigerðan viðhaldstíma, til dæmis skipti á þaki eða gluggum og endurnýjun á yfirborðsefnum.
Kolefnisspor
Kolefnisspor mælir losun gróðurhúsalofttegunda vegna athafna mannsins. Helstu lofttegundir eru:
- koltvísýringur (CO2)
- metan (CH4)
- hláturgas (N2O)
- óson (O3)
- vetnisflúorkolefnis (HFC)
- perflúorkolefni (PFC)
- brennisteinshexaflúoríð (SF6)
Þessar lofttegundir hafa mismikil áhrif á hlýnun jarðar. Kolefnissporið er gefið upp í tonnum eða kílóum CO2-ígilda (t CO2-ígilda eða kg CO2-ígilda) til að einfalda útreikninga og umfjöllun.
Bakgrunnsgögn
Gögn þurfa að vera rekjanleg, hvort sem notuð eru EPD blöð, meðaltalsgildi fyrir Ísland eða aðrir gagnabankar.
Í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi eru til gagnabankar með meðaltölum fyrir byggingarefni og orkunotkun. Ef ekki eru til séríslenskar tölur, skal nota aðra gagnabanka og tryggja rekjanleika gagnanna.
Byggingarhlutar
Sjá eftirfarandi töflu yfir þá byggingarhluta sem eiga að vera innifaldir í LCA greiningu íslenskra bygginga. Skila þarf upplýsingum um alla helstu byggingarhluta og tæknikerfi.
Hönnunargögn eins og magnskrár og módel innihalda oftast nauðsynlegar upplýsingar. Fyrir einstaka byggingarhluta þarf að skila upplýsingum um byggingarefni og magn þeirra fyrir lífsferilsgreiningu.
Ef byggingarhlutar hafa ekki verið skilgreindir í útboði eða hönnunargögnum, en verða hluti af byggingunni, skal áætla þá með almennum bakgrunnsgögnum á hönnunarstigi og uppfæra upplýsingar á lokastigi.
Endurnotað byggingarefni
Endurnotkun á byggingarefnum er skráð án losunar eða 0 kg CO2-íg/m²/ári, ef fyrri notkun var á Íslandi. Flutningar (A4) og byggingarframkvæmdir (A5) eru reiknuð eins og fyrir ný efni. Athugið að þetta á við um endurnotkun, ekki endurunnið efni, til dæmis stálbita sem fluttir eru frá einum niðurrifstað og nýttir í öðru mannvirki.