Lán til bygginga vistheimila og sambýla
Lán til bygginga vistheimila og sambýla
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að lána félögum, sveitarfélögum og félagasamtökum til byggingar eða kaupa á sambýlum fyrir fatlaða.Við ákvörðun lánsfjárhæðar er tekið tillit til fjármagns frá Framkvæmdasjóði fatlaðra og úr ríkisjóði til hlutaðeigandi framkvæmdar þannig að þetta allt samanlagt getur aldrei orðið hærra en sem nemur kaupverði eða heildar byggingakostnaði framkvæmdar.Lán koma til útgreiðslu þegar framkvæmdum er lokið eða samkvæmt kauptilboði. HMS er heimilt að greiða lán út á framkvæmdatíma að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Upplýsingar vegna lána til bygginga vistheimila og sambýla
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun áskilur sér rétt til að afla opinberra gagna um félagið, þ.á m. en ekki takmarkað við, hlutafélagaskrá, lánshæfi hjá Creditinfo og birta ársreikninga.