Húsnæðisáætlanir

Húsnæðisáætlanir

Húsnæðisáætlanir

Húsnæðisáætlanir

Um hús­næð­is­á­ætl­an­ir

Um hús­næð­is­á­ætl­an­ir

Hlutverk húsnæðisáætlana er að draga fram mynd af því hver staða húsnæðismála er í hverju sveitarfélagi fyrir sig, greina framboð og eftirspurn eftir margvíslegum húsnæðisformum og setja fram áætlun um hvernig sveitarfélagið ætlar að mæta húsnæðisþörf heimila, bæði til skemmri og lengri tíma. Megin markmið með gerð húsnæðisáætlana er því að stuðla að auknu húsnæðisöryggi heimilanna.

Mark­mið og til­gang­ur hús­næð­is­á­ætl­ana

Tilgangur laga um húsnæðismál er að stuðla að því með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála að fjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleika fólks á að eignast eða leigja húsnæði með viðráðanlegan húsnæðiskostnað. Til þess að tilgangi laganna verði náð þurfa sveitarfélög að greina stöðu húsnæðismála innan sinna marka og setja sér áætlun um hvernig húsnæðisþörf verði mætt. Megin markmið með gerð húsnæðisáætlana er því að auka yfirsýn á stöðu húsnæðismála og meta framtíðarhorfur og þannig stuðla að auknu húsnæðisöryggi heimila í hverju sveitarfélagi. 

Hverj­ir gera hús­næð­is­á­ætl­an­ir?

Sveitarstjórnir fara með stefnumótun húsnæðismála í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Sveitarstjórn ber ábyrgð á og hefur frumkvæði að því að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Í því skyni skal sveitarstjórn fylgjast með þörf á húsnæði og greina með reglubundnum hætti þörf fyrir íbúðir í sveitarfélaginu og gera áætlanir um hvernig þörf fyrir íbúðarhúsnæði verður mætt.

Öll sveitarfélög skulu gera húsnæðisáætlun til tíu ára í senn og þær skuli uppfærðar og staðfestar árlega með tilliti til breytinga og þróunar sem orðið hafa á forsendum hennar á milli ára. Þá skulu sveitarfélög tryggja að húsnæðisáætlun sveitarfélagsins sé í samræmi við gildandi fjárhags- og skipulagsáætlanir sveitarfélagsins og eftir atvikum aðrar áætlanir sem áhrif hafa á þróun hús­næðis­mála.

Uppfærðum húsnæðisáætlunum skal skila til HMS eigi síðar en 20. janúar ár hvert.

Mikilvægt er sveitarfélög móti sér stefnu í húsnæðismálum til lengri og skemmri tíma og að gerð húsnæðisáætlana verði samstarfsverkefni innan stjórnsýslu sveitarfélags, með aðkomu félagsþjónustu, skipulagsyfirvalda, fjármálastjóra og umsjónaraðila fasteigna sveitarfélags (byggingafulltrúa).

Hlut­verk Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar

HMS hefur meðal annars það hlutverk að halda utan um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga og vera sveitarfélögunum til ráðgjafar við gerð þeirra.

HMS ber að fylgjast með áætlanagerð sveitarfélaga um þörf á íbúðarhúsnæði í sveitar­félaginu og veita ráðgjöf og upplýsingar við áætlanagerðina.

HMS lætur sveitarfélögum í té þau gögn og aðrar upplýsingar á sviði húsnæðismála sem hann hefur safnað og nýst geta sveitarfélögum við vinnslu húsnæðisáætlana. Sjá nánar í lögum um húsnæðismál númer 44/1998