14. mars 2024

Yfir 7 þúsund íbúðir í byggingu á landinu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Alls eru 7.174 íbúðir í byggingu um allt land, samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu. Meirihluti íbúða í byggingu er á höfuðborgarsvæðinu, en 38 prósent þeirra er annað hvort á Suðurlandi eða á Suðurnesjum.

Mælaborð íbúða í byggingu birtir samantekin gögn og talningar fyrir íbúðarhúsnæði úr Mannvirkjaskrá HMS. Mannvirkjaskrá nýtir m.a. gögn úr fasteignaskrá ásamt gögnum frá sveitarfélögum.

Til þess að mælaborðið sýni sem áreiðanlegustu mynd á íbúðum í bygginu þá fer HMS í framvinduskoðanir og uppfærir matsstig íbúða þegar þess þarf ásamt því að fylgja eftir skráningum á nýjum framkvæmdum.

Lang­flest­ar íbúð­ir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Suð­ur­landi og á Suð­ur­nesj­um

Samkvæmt núverandi stöðu mælaborðsins eru 4.284 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu, en stærstu íbúðaþyrpingarnar má finna á Völlunum í Hafnarfirði og Urriðaholti í Garðabæ. Á Suðurlandi eru íbúðir í byggingu 1.320 og eru þær flestar í sveitarfélögunum Ölfusi og Árborg. Á Suðurnesjum eru svo 684 íbúðir í byggingu og eru þær flestar í Reykjanesbæ.

Íbúðir í byggingu utan höfuðborgarsvæðisins, Suðurlands og Suðurnesja eru hins vegar 886, en þar af eru 223 á Akureyri. Fæstar eru íbúðir í byggingu á Vestfjörðum, en þar eru þær einungis 32 talsins.

Flest­ar íbúð­ir eru ekki orðn­ar fok­held­ar

Mikill meirihluti íbúða í byggingu eru á fyrri stigum en 5.292 íbúðir hafa ekki náð fokheldi eða um 74% af heildarfjölda íbúða í bygginu, þar af 4.452 íbúðir í fjölbýli og 840 sérbýli. Á höfuðborgarsvæðinu hefur 80% íbúða í byggingu ekki náð fokheldi, eða 3.399 af 4.284 íbúðum. Íbúðir á seinni byggingarstigum á höfuðborgarsvæðinu eru því 885, en þar af eru tæplega 700 íbúðir í fjölbýli og 200 sérbýli.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS