13. júní 2025

Yfir 2.200 leigusamningar féllu úr gildi í maí

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Gildum leigusamningum í leiguskrá fækkar um 856 talsins í maí þar sem 2.231 samningur féll úr gildi á móti 1.375  sem tóku gildi
  • Um helmingur leigusamninga sem féllu úr gildi í maí voru um íbúðir í eigu óhagnaðardrifinna leigufélaga
  • Eftirspurnarþrýstingur eykst aftur á leigumarkaði þar sem virkum leitendum á Myigloo.is hefur fjölgað hratt á síðustu mánuðum

Alls tóku 1.375 samningar gildi í maí á sama tíma og 2.231 samningur féll úr gildi. Þannig fækkaði gildum leigusamningum í leiguskrá um 856 í mánuðinum. Um 50 prósent leigusamninga sem féllu úr gildi voru um íbúðir hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum. Flestir óhagnaðardrifnir leigusamningar sem féllu úr gildi voru um íbúðir á Akureyri, eða um 43 prósent.

Frá ársbyrjun hefur virkum leitendum á Myigloo.is fjölgað og hafa þeir verið á bilinu 1.500 til 1.800 sem bendir til þess að eftirspurn á leigumarkaði hefur aukist töluvert síðustu mánuði og er nú álíka mikil og um mitt ár í fyrra.

Um 85 pró­sent samn­inga sem féllu úr gildi á Ak­ur­eyri vörð­uðu íbúð­ir í eigu óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga

Alls tóku 3.357 gildi í ágúst í fyrra þar sem 2.097 samningar tóku gildi um íbúðir á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Um 32 prósent af þeim samningum sem tóku gildi þá féllu úr gildi í nýliðnum maímánuði, en um helmingur þeirra samninga eru um íbúðir á Akureyri.

Á myndinni hér að ofan má sjá fjölda leigusamninga sem tóku gildi og féllu úr gildi eftir mánuðum og staðsetningu. Á Akureyri tóku alls 60 samningar gildi í maí á sama tíma og 511 samningar féllu úr gildi. Flestir samningar sem féllu úr gildi eru í eigu óhagnaðardrifinna leigufélaga, eða um 85 prósent. Hér vega leigusamningar um íbúðir í námsgörðum þungt, en fjöldi þeirra fellur úr gildi í lok skólaársins í maímánuði og taka gildi í byrjun skólaársins í ágústmánuði.

 

Eft­ir­spurn­ar­þrýst­ing­ur eykst á leigu­mark­aði

Leiguvefurinn Myigloo.is er markaðstorg fyrir aðila á leigumarkaði. Meginþorri leigu samninga sem skila sér þaðan í leiguskrá HMS eru vegna leiguíbúða sem leigðar eru út af einstaklingum. Fyrir vikið gefur gagnasafn Myigloo.is nokkuð raunsæja mynd af þróun þess hluta markaðarins.

Á meðfylgjandi grafi má sjá fjölda virkra leitenda, þ.e. notenda sem sækja að minnsta kosti einu sinni um leiguhúsnæði innan hvers mánaðar á Myigloo.is. Mikill eftirspurnarþrýstingur var á leigumarkaði á fyrri hluta árs síðasta árs þegar virkir leitendur voru á bilinu 1.400 til 1.900 í hverjum mánuði.

Á síðasta ársfjórðungi 2024 fækkaði virkum leitendur hins vegar töluvert þegar þeir voru á bilinu 1.100 til 1.400 í hverjum mánuði sem bendir til þess að eftirspurn eftir leiguhúsnæði minnkaði. Á sama tíma og dróst úr leiguverðshækkunum, en vísitala leiguverðs lækkaði í desember og janúar.

Á sama tíma og virkum leitendum hefur fjölgað hefur fjöldi leigusamninga sem skráðir eru í leiguskrá í gegnum Myigloo.is í hverjum mánuði fækkað lítillega. Færri gerðir leigusamningar á sama tíma og virkum leitendum fjölgar bendir til þess að eftirspurnarþrýstingur hefur aukist á leigumarkaði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS