16. júní 2025

Vöxtur í Hvalfjarðarsveit umfram áætlanir 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Gert er ráð fyrir að íbúum muni fjölga um 62 manns á næstu 5 árum og að fjölga þurfi íbúðum um 24 til þess að mæta þeirri fólksfjölgun. 
  • Sveitarfélagið leggur áherslu á vistvænan ferðamáta í skipulagi. 
  • Fjöldi íbúða í byggingu er nú töluvert meiri en áætlað er að þörf sé fyrir á næstu árum. 

Hvalfjarðarsveit hefur samþykkt endurskoðaða húsnæðisáætlun fyrir árið 2025. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að íbúum sveitarfélagsins fjölgi um 62 á næstu fimm árum og um 129 á næstu tíu árum, sem samsvarar 7,8% fólksfjölgun á fimm árum og 16,1% fjölgun á tíu árum. 

Ný spá sveitarfélagsins gerir ráð fyrir svipuðum vexti og spá síðasta árs en íbúum fjölgaði nærri þrefalt meira heldur en spáin gerði ráð fyrir í fyrra. Til frekari samanburðar hefur íbúum í Hvalfjarðarsveit fjölgað mun meira á síðastliðnum árum heldur en ný húsnæðisáætlun gerir ráð fyrir, en íbúum sveitarfélagsins fjölgaði um 129 síðastliðin fimm ár, sem jafngildir 20,4% aukningu á því tímabili. Fólksfjölgun síðastliðinna fimm ára er því rúmlega tvöfalt meiri heldur en spáð er að verði á næstu fimm árum. 

Þörf fyr­ir um 50 nýj­ar íbúð­ir á næstu 10 árum

Samkvæmt húsnæðisáætluninni er áætlað að þörf verði fyrir að meðaltali um 5 nýjar íbúðir á ári, sem jafngildir 24 íbúðum á næstu fimm árum og alls 50 íbúðum yfir tíu ára tímabil. Til samanburðar hefur fjölgun íbúða á síðustu fimm árum verið að meðaltali um 16 íbúðir og 10 íbúðir á ári síðastliðin tíu ár.

Íbúð­ir í bygg­ingu vel um­fram áætl­aða þörf

Samkvæmt nýjustu talningu HMS voru 54 íbúðir í byggingu í mars 2025. Það er meira en tvöfalt fleiri en á sama tíma í fyrra en svipaður fjöldi og mældist í september 2024. Á myndinni hér að neðan má sjá að meirihluti íbúða í byggingu er á matsstigi 2 og 4, sem þýðir annarsvegar að undirstöður séu fullgerðar og hins vegar að mannvirkið sé orðið fokhelt.

Fjöldi íbúða sem nú teljast í byggingu dugir vel til að mæta þeirri íbúðaþörf sem sveitarfélagið áætlar að verði á næstu tveimur árum.

Nýtt hverfi í mót­un með sjálf­bæra nálg­un

Hvalfjarðarsveit leggur áherslu á að ljúka uppbyggingu þeirra íbúðasvæða sem þegar hafa verið skipulögð og tryggja að ný íbúðarbyggð tengist vel við núverandi innviði eins og skóla, leikskóla og íþróttamannvirki. Þetta á meðal annars við um Melahverfi III, nýtt 8,2 hektara deiliskipulagt íbúðarsvæði þar sem áfangaskipt uppbygging hefst með gatnagerð árið 2025. Svæðið mun bjóða upp á fjölbreyttar lóðir fyrir einbýli, par- og raðhús og rúma allt að 74 íbúðir í tveimur götum sem nefnast Urðarmelur og Holtamelur.

Í Melahverfi verður áhersla lögð á vistvænar samgöngur og aðgengi, með göngu- og hjólreiðastígum í allar áttir og nýrri tengingu við Vesturlandsveg. Í miðju hverfisins verður leiksvæði og gert er ráð fyrir nýjum þriggja deilda leikskóla í hverfinu. Einnig er í byggingu nýtt íþróttahús við Heiðarskóla.

Nægt lóða­fram­boð til að mæta vax­andi íbúða­þörf

Hvalfarðarsveit hefur nú skipulagt lóðir fyrir 118 íbúðir á næstu 5 árum, flestar í nýja Melahverfi III. Lóðaframboð ætti því að mæta vel áætlaðri íbúðaþörf gangi úthlutunaráætlanir eftir.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS