22. janúar 2025
22. janúar 2025
Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,92 prósent í desember
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Hægt hefur á hækkun vísitölu leiguverðs síðustu mánuði og nam sex mánaða hækkun hennar 2,4 prósent í desember
- Á síðustu 12 mánuðum hefur vísitala leiguverðs hækkað um 12,6 prósent á meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 4,8 prósent
- Vísitala leiguverðs heldur áfram að hækka umfram almennt verðlag og nam 12 mánaða raunbreyting leiguverðs 7,5 prósent í desember
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 118,9 stig í desember og lækkar um 0,92 prósent á milli mánaða. Síðast lækkaði vísitalan í september þegar hún lækkaði tvo mánuði í röð í ágúst og september 2024.
Á ársgrundvelli hefur vísitala leiguverðs hækkað um 12,6 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 4,8 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 7,7 prósent. Hægt hefur á hækkun leiguverðsvísitölunnar og er sex mánaða hækkun hennar mun minni eða 2,4 prósent. Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu vísitölu leiguverðs ásamt gildi hennar síðustu 12 mánuði.
Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo desembergildi hennar tekur mið af leigusamningum í nóvember og desember.
Leiguverðsjá sýnir lækkun eins og vísitalan
Hægt er að nálgast upplýsingar um leigusamninga í leiguverðsjá HMS, þar sem leigusalar og leigutaka geta nálgast upplýsingar um markaðsverð íbúða og fjölda leigusamninga í hverjum mánuði.
Samkvæmt leiguverðsjánni lækkaði fermetraverð markaðsleiga á tveggja og þriggja herbergja íbúða á höfuðborgarsvæðinu um 3,7 prósent á milli nóvember og desember eftir hækkun á milli október og nóvember. En flestir samningar í útreikningi vísitölunnar eru um tveggja og þriggja herbergja íbúðir.
Fermetraverð markaðsleigu á tveggja og þriggja herbergja íbúðum á höfuðborgarsvæðinu var að meðaltali 4.077 kr. í október og nóvember og 4.047 kr. í nóvember og desember. Fermetraverð markaðsleigu á slíkum íbúðum lækkaði þar með um 0,7 prósent. Hafa ber þó í huga að leiguverðsjáin sýnir ekki leiguverð einstakra samninga, einungis meðaltöl.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS