19. apríl 2023

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu í mars 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 235,9 stig í mars 2023 (janúar 2011=100) og hækkaði um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

For­send­ur

Vísitala leiguverðs byggir á þinglýstum leigusamningum. Hafa verður í huga að alls ekki öllum leigusamningum er þinglýst og ekki er víst að úrtakið gefi óbjagaða mynd af þróun leiguverðs. HMS hefur nú tekið í notkun leiguskrá í húsnæðisgrunni sínum. Því má búast við að þinglýstum leigusamningum fækki og þar með verði enn meiri hætta á að vísitala byggð á þinglýstum samningum gefi ekki rétta mynd af verðþróun. Þegar reynsla verður komin á skráningu í grunninn mun HMS nýta upplýsingar úr húsnæðisgrunni til að endurskoða aðferðir við útreikning á vísitölu leiguverðs.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS