21. maí 2025
21. maí 2025
Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,33 prósent á milli mánaða í apríl 2025
- Vísitala leiguverðs hækkaði á milli mánaða í apríl og mældist 121,9 stig
- Vísitalan hækkaði um 11 prósent á milli aprílmánaða 2024 og 2025, á meðan verðbólga mældist 4,2 prósent á sama tímabili
- Markaðsleiga hækkaði um 6,6 prósent að raunvirði á ársgrundvelli í apríl, samanborið við 7,3 prósenta raunverðshækkun í mars
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 121,9 stig og hækkaði um 1,33 prósent á milli mánaða í apríl. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala leiguverðs hækkað um 11,02 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 4,2 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 7,63 prósent. Leiguverð hækkaði því um 6,6 prósent að raunvirði á milli aprílmánaða 2024 og 2025.
Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.
Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við nýskráða leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo aprílgildi hennar tekur mið af leigusamningum í mars og apríl.
Leiguverðsjá sýnir einnig hækkun á milli mánaða í apríl
Hægt er að nálgast upplýsingar um leigusamninga í leiguverðsjá HMS, þar sem leigusalar og leigjendur geta nálgast upplýsingar um markaðsverð íbúða og fjölda leigusamninga í hverjum mánuði.
Fermetraverð markaðsleigu var að meðaltali 3.939 kr. í febrúar og mars og 4.014 kr. í mars og apríl. Fermetraverð markaðsleigu á höfuðborgarsvæðinu hækkaði þar með um 1,9 prósent. Hafa ber þó í huga að leiguverðsjáin sýnir ekki leiguverð einstakra samninga, einungis meðaltöl.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs.