17. desember 2024
18. desember 2024
Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,27 prósent í nóvember
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Leiguverð hækkar aftur annan mánuðinn í röð eftir tveggja mánaða lækkun í ágúst og september síðastliðnum
- Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala leiguverðs hækkað um 11,5 prósent, á meðan verðbólgan mældist um 4,8 prósent á sama tímabili
- 12 mánaða raunbreyting leiguverðs nam 6,4 prósentum í nóvember
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 120 stig í nóvember og hækkaði um 1,27 prósent á milli mánaða. Leiguverð hækkar þá annan mánuðinn í röð eftir að hafa lækkað tvo mánuði í röð í ágúst og september á þessu ári.
Á ársgrundvelli hefur vísitala leiguverðs hækkað um 11,5 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 4,8 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 10,6 prósent. Leiguverð hækkaði því um 6,4 prósent að raunvirði á milli nóvembermánaða 2023 og 2024.
Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo októbergildi hennar tekur mið af leigusamningum í október og nóvember.
Hægt er að nálgast upplýsingar um leigusamninga í leiguverðsjá HMS, en hana má nálgast með því að smella á þennan hlekk.
Raunverðshækkanir í eitt og hálft ár
Leiguverð heldur áfram að hækka umfram verðlag á landinu öllu, en raunverðshækkun vísitölu leiguverðs á ársgrundvelli nam 6,4 prósent í nóvember. Til samanburðar hækkaði leiguverð um 5,8 prósent að raunvirði í október og 4,9 prósent í september.
Á mynd hér að neðan má sjá hækkanir á vísitölu leiguverðs síðustu 12 mánaða umfram verðbólgu frá árinu 2015. Líkt og myndin sýnir hefur leiguverð hækkað umfram verðbólgu í hverjum mánuði í eitt og hálft ár, eða frá maímánuði árið 2023.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS