18. mars 2026

Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,2 prósent í febrúar 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði á milli mánaða eftir að hafa lækkað tvo mánuði í röð
  • Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitalan hækkað um 5,18%
  • Leiguverð hefur hækkað minna en verðbólga annan mánuðinn í röð

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 126,0 stig í febrúar og hækkaði um 1,2% á milli mánaða eftir að hafa lækkað tvo mánuði í röð. Gildi vísitölunnar er þó enn lægra en það var í október og nóvember á síðasta ári þegar hún mældist 126,4 og 126,7 stig.

Á síðastliðnum 12 mánuðum hefur vísitalan hækkað um 5,18% á sama tíma og verðbólga mældist 5,2% og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 2,35%. Leiguverð hefur því lækkað lítillega að raunvirði undanfarna 12 mánuði, eða um 0,02%.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo febrúargildi hennar tekur mið af leigusamningum í febrúar og janúar.

Minni verð­þrýst­ing­ur á leigu­mark­aði

Á síðustu mánuðum hefur verðþrýstingur minnkað á leigumarkaði. Tólf mánaða hækkun vísitölu leiguverðs hefur verið í kringum 5%, en til samanburðar nam 12 mánaða breyting hennar í kringum 12% frá miðju ári 2023 fram í ársbyrjun 2025. Um mitt ár 2025 fór að hægja á hækkun leiguverðs, sem bendir til þess að verðþrýstingur hafi minnkað á leigumarkaði. Á myndinni hér að neðan má sjá 12 mánaða breytingu vísitölu leiguverðs frá janúar 2020.

Mæla­­­­borð fyr­­­­ir vísi­­­­töl­­­­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS