17. apríl 2024

Vísitala leiguverðs hækkaði um 0,6 prósent í mars

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Mánaðarhækkun vísitölu leiguverðs var 0,6 prósent í mars, en 1,5 prósent í febrúar
  • Vísitalan hefur hækkað um 9,8 prósent á ársgrundvelli frá upphafsgildi hennar í maí 2023
  • Sambærileg hækkun vísitölunnar í febrúar var 10,1 prósent

Vísitala leiguverðs var 108,1 stig í mars 2024 og hækkaði hún um 0,6 prósent á milli mánaða. Á ársgrundvelli hefur vísitalan hækkað um 9,8 prósent frá því í maí í fyrra og er sú hækkun umfram 12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs (5,5 prósent) og verðbólgu (6,8 prósent).

Þróun leiguvísitölunnar frá maímánuði 2023 má sjá á mynd hér að neðan. Hægt er að nálgast gildin að baki vísitölunni með því að smella á þennan hlekk.

Í janúar síðastliðnum tók HMS nýja vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu í notkun, en fyrsti útreikningur hennar miðast við maí 2023 og er gildi hennar þá 100.  Vísitalan, sem sjá má á mynd hér að ofan, sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS