22. júlí 2026

Vísitala leiguverðs hækkaði um 0,39 prósent á milli mánaða í júní 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,39 prósent á milli mánaða annan mánuðinn í röð
  • Vísitala leiguverðs hefur hækkað um 5,7 prósent á milli ára og er sú hækkun umfram verðbólgu
  • Leiguverð er enn lágt miðað við kaupverð í sögulegu samhengi

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 129,8 stig í júní og hækkaði því um 0,39% á milli mánaða líkt og í maí. Þar sem vísitalan lækkaði um 0,40% á milli mánaða í júní í fyrra hækkar árstaktur vísitölunnar frá fyrri mánuði. Hann mældist 4,87% í maí en mælist nú 5,70% á sama tíma og íbúðaverð hækkaði um 1,80% og verðbólga mældist 5,2%.

Hægt er að nálgast mælaborð fyrir vísitölur HMS með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo júnígildi hennar tekur mið af leigusamningum í maí og júní.

Leigu­verð sem hlut­fall af kaup­verði held­ur áfram að hækka

Vísitala leiguverðs hefur hækkað talsvert umfram vísitölu íbúðaverðs undanfarin ár líkt og sjá má á myndinni hér að neðan sem sýnir vísitölu leiguverðs sem hlutfall af vísitölu íbúðaverðs. Hlutfallið hefur farið hækkandi frá miðju ári 2022 eftir að hafa lækkað mikið frá byrjun árs 2020 þegar íbúðaverð hækkaði hratt í kjölfar skarpra vaxtalækkana.

Af myndinni hér að ofan má þó lesa að hlutfallið er enn lágt í sögulegu samhengi. Hlutfallið var nokkuð hærra áður en heimsfaraldurinn skall á og enn hærra á árunum þar á undan.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS